top of page
Search

Næstu mót

Framundan eru tvö badmintonmót sem BH-ingar geta skráð sig á. Annað er trimmót fyrir fullorðna og fer skráning í það fram á staðnum en hitt er B mót unglinga sem hægt er að skrá sig á með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com.


Kjörísmót Hamars - 2.nóvember

Staðsetning: Hamarshöllin í Hveragerði

Flokkar: U9-U19 B&C - hentar vel fyrir þau sem ekki hafa keppt áður því þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki taka þátt

Keppnisfyrirkomulag: Keppnisfyrirkomulag fer eftir þátttökufjölda, allir fá amk tvo leiki í einliðaleik. Tvíliðaleikur í boði fyrir U13-U19.

Mótsgjöld: 1.800 kr fyrir einliðaleik og 1.500 kr á mann fyrir tvíliðaleik. Skráningu lýkur: Sunnudaginn 27.október


Haustmót trimmara - 3.nóvember

Staðsetning: TBR húsið Flokkar: Badmintontrimmarar, 18 ára og eldri sem ekki eru í A-flokki fullorðinna og aldrei hafa verið skráðir í meistaraflokk.

Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í tvíliðaleik og eru leikmenn dregnir saman í hverri umferð. Leiknar verða a.m.k. 5 umferðir og hefst keppni klukkan 11:00

Mótsgjöld: 3000 kr á mann

Skráningu lýkur: Skráning á staðnum

Almennt um mót

BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp.

Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.

Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2018-2019

U9 - fædd 2011 og síðar U11 - fædd 2009 og 2010 U13 - fædd 2008 og 2007 U15 - fædd 2006 og 2005 U17 - fædd 2004 og 2003 U19 - fædd 2002 og 2001



bottom of page