top of page
Search

Næstu mót

Framundan eru tvö fullorðinsmót sem BH-ingar geta skráð sig á með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com.


TBR opið - 5.-6.október

Staðsetning: TBR húsið Gnoðarvogi

Flokkar: M.fl., A-flokkur og B-flokkur - aðeins fyri vant keppnisfólk 14 ára og eldri

Keppnisfyrirkomulag: Útsláttarkeppni í einliðaleik, riðlar í tvíliða og tvenndarleik. Keppni hefst klukkan 10:00 báða dagana.

Mótsgjöld: 3.500 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann fyrir tvíliða- og tvenndarleik. Skráningu lýkur: Mánudaginn 30.september


SET mót KR - 12.-13.október

Staðsetning: KR heimilið við Frostaskjól Flokkar: M.fl., A-flokkur og B-flokkur - aðeins fyri vant keppnisfólk 14 ára og eldri

Keppnisfyrirkomulag: Hreinn útsláttur í öllum greinum en aukaflokkur í einliðaleik í A og B flokkum. Keppt í tvíliða- og tvenndarleik á laugardag og einliðaleik á sunnudag.

Mótsgjöld: 3.500 kr fyrir einliðaleik og 2.500 kr á mann fyrir tvíliða- og tvenndarleik.

Skráningu lýkur: Föstudaginn 4.október


Almennt um mót

BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp.

Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.

Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2018-2019

U9 - fædd 2011 og síðar U11 - fædd 2009 og 2010 U13 - fædd 2008 og 2007 U15 - fædd 2006 og 2005 U17 - fædd 2004 og 2003 U19 - fædd 2002 og 2001




bottom of page