top of page
Search

Næstu mót

Þá er mótatímabilið að hefjast af fullum krafti og eru eftirfarandi næstu mót sem BH-ingar geta skráð sig á:


Haustmót TBR - 20.september

Staðsetning: TBR húsið Gnoðarvogi

Flokkar: Einn opinn fullorðinsflokkur - 14 ára og eldri

Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður með forgjöf í tvíliða/tvenndarleik. Karlar og konur keppa í sama flokki. Keppt verður í 3-4 liða riðlum og verða "öðruvísi verðlaun". Keppni hefst klukkan 17:00 og stendur fram á kvöld.

Mótsgjöld: 2.500 kr á mann Skráningu lýkur: Mánudaginn 16.september

Reykjavíkurmót unglinga - 21.-22.september

Staðsetning: TBR húsið Gnoðarvogi Flokkar: U13-U19A - Mælum ekki með fyrir þau sem ekki hafa keppt áður. B mót passar betur fyrir þau Keppnisfyrirkomulag: Einliðaleikur í riðlum. Tvíliða- og tvenndarleikur með útslætti. Það ræðst af þátttöku hvort að mótið verði spilað á einum eða tveimur dögum. Kemur í ljós á fimmtudegi eða föstudegi fyrir mót.

Mótsgjöld: 1.800 krónur á mann í einliðaleik og 1.700 krónur á mann tvíliða- og tvenndarleik.

Skráningu lýkur: Mánudaginn 16.september

Almennt um mót

BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp.

Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.

B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.

Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.

Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.

Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2018-2019

U9 - fædd 2011 og síðar U11 - fædd 2009 og 2010 U13 - fædd 2008 og 2007 U15 - fædd 2006 og 2005 U17 - fædd 2004 og 2003 U19 - fædd 2002 og 2001




bottom of page