top of page
Search

Mótaskrá vetrarins er klár

Updated: Sep 19, 2022

Keppnistímabilið í badminton er nú hafið af fullum krafti og mót á dagskrá nær hverja helgi fram í desember. Hvetjum iðkendur sem hafa áhuga á keppni til að kíkja á mótaskrá Badmintonsambandsins hér á badminton.is og setja mót sem þau stefna á í dagatalið hjá sér. Skráningu lýkur yfirleitt viku fyrir mót en upplýsingar um nákvæman tíma koma á vefinn okkar badmintonfelag.is um leið og upplýsingar berast.


Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um næstu mót sem hægt er að skrá sig á og neðst eru almennar upplýsingar um badmintonmót.


Meistaramót UMFA - 23.-25.september


Staðsetning: Íþróttamiðstöðin við Varmá í Mosfellsbæ


Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.


Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í tvíliða- og tvenndarleik en hreinn útsláttur í einliðaleik. Stefnt er að því að hver grein verði spiluð út á einum degi en raðað verður niður á daga eftir skráningu. Mótanefnd UMFA áskilur sér rétt á að spila 1 umferð í völdum greinum á föstudagskvöldi, ef þáttaka og uppröðun kallar á slíkt.


Mótsgjöld: 3.000 kr á mann í hverja grein (mótsgjöld skal leggja inná reikning BH þegar niðurröðun í mótið er tilbúin - skráðir fá póst til að láta vita um það)


Skráningu lýkur: Sunnudaginn 18.september


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði.



Unglingamót TBS - 1.-2.október 2022


Farið verður í hópferð frá BH með rútu norður föstudaginn 30.september og komið til baka seint á sunnudagskvöld 2.október. Gist verður í húsnæði Slysavarnarfélagsins á Siglufirði.


Staðsetning: Íþróttamiðstöðin á Siglufirði


Flokkar: U11-U19 A og B - Hentar fyrir bæði styttra og lengra komna


Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í einliðaleik en hreinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik


Mótsgjöld: Ferðin kostar 25.000 kr á hvern iðkanda og er rúta, gisting, morgunmatur, kvöldmatur laugardag og sunnudag og mótsgjöld innifalið.


Skráningu lýkur: Fimmtudaginn 22.september


Skráning: Nánari upplýsingar og skráning hér.



TBR Opið - 8.-9.október 2022


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog


Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.


Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í tvíliða- og tvenndarleik en hreinn útsláttur í einliðaleik.


Mótsgjöld: 4.000 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik (mótsgjöld skal leggja inná reikning BH þegar niðurröðun í mótið er tilbúin - skráðir fá póst til að láta vita um það)


Skráningu lýkur: Miðvikudaginn 28.september


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði.


Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og styttra komna, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2022-2023 U9 - fædd 2014 og síðar U11 - fædd 2012 og 2013 U13 - fædd 2010 og 2011 U15 - fædd 2008 og 2009 U17 - fædd 2006 og 2007 U19 - fædd 2004 og 2005



Bikarmót BH í Strandgötu í maí 2022
Bikarmót BH í Strandgötu í maí 2022

bottom of page