top of page
Search

Mótahald að hefjast á ný

Updated: Jan 22, 2021

Þá fer mótahald í badminton að hefjast aftur eftir hlé síðan í haust. Hér fyrir neðan má finna upplýsingar um næstu mót sem BH-ingar geta skráð sig með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com. Hvetjum keppnisglaða til að taka þátt.

Meistaramót TBR - 30.-31.janúar Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog Flokkar: Meistara, A og B flokkar fullorðinna. Aðeins fyrir vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í einliðaleik, beinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik. Mótsgjöld: 3.500 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik Skráningu lýkur: Föstudaginn 22.janúar

Unglingameistaramót TBR - Reykjavik International Games - 6.-7.febrúar

Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog

Flokkar: U13-U19 - Keppt í A og B getustigi í einliðaleik og því hentar mótið fyrir bæði byrjendur og lengra komna. Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í einliðaleik, beinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik. Keppni hefst kl.10:00 báða dagana og mun dagskrá liggja fyrir fimmtudaginn 4.febrúar. Mótsgjöld: 2000 kr fyrir einliðaleik og 1800 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik Skráningu lýkur: Föstudaginn 29.janúar


Meistaramót BH og RSL - 12.-14.febrúar Staðsetning: Íþróttahúsið við Strandgötu Flokkar: Meistara, A og B flokkar fullorðinna. Aðeins fyrir vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í tvíliða- og tvenndarleik en hreinn útsláttur í einliðaleik. Keppni hefst kl.17 á föstudag og kl.9 laugardag og sunnudag. Nánari dagskrá verður birt þriðjudaginn 9.febrúar. Mótsgjöld: 3.500 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik Skráningu lýkur: Föstudaginn 5.febrúar

Almennt um badmintonmót

Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.

BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.

Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.

Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.

Flokkaskiptingar barna og unglinga frá veturinn 2020-2021 (gildir frá 1.okt) U9 - fædd 2012 og síðar U11 - fædd 20010 og 2011 U13 - fædd 2008 og 2009 U15 - fædd 2007 og 2006 U17 - fædd 2005 og 2004 U19 - fædd 2003 og 2002



bottom of page