top of page
Search

Met skráning á sumarnámskeið

Sumarnámskeið BH hafa verið mjög vel sótt undanfarin ár og var sumarið 2023 engin undantekning. Í heildina voru 211 börn skráð og hafa aldrei verið fleiri. Því miður komust færri að en vildu en aðstaða og mannafli gerir það að verkum að ekki er hægt að fjölga meira.


Í boði voru fimm viku löng námskeið þar sem þátttakendur mættu í 3-7 klst á dag. Fyrir hádegi var badminton fyrir byrjendur og styttra komna og eftir hádegi var badminton fyrir keppniskrakka og borðtennis fyrir byrjendur og styttra komna. En ekki var einungis farið í badminton og borðtennis á námskeiðunum, útivist og ýmsir leikir og þrautir voru einnig á dagskrá.


Þjálfarar í sumar voru Una Hrund Örvar, badmintonþjálfari, Sólrún Anna Ingvarsdóttir, íþróttafræðinemi og badmintonþjálfari, og Anna Lilja Sigurðardóttir, íþróttafræðingur og badmintonþjálfari. Þeim til aðstoðar voru ungmenni sem æfa badminton og borðtennis hjá félaginu: Angela Líf, Björn Ágúst, Elín Helga, Guðmar Gauti, Hergill Frosti, Lena Rut, Snædís Sól, Sólon Chanse, Yuna Ír og Þórdís María.


Allir fengu ávexti í stuttu hléi fyrir og eftir hádegi og léttan hádegismat ef um heilsdags námskeið var að ræða. Á föstudögum voru grillaðar pylsur í hádeginu fyrir alla þátttakendur. Starfsfólk BH í íþróttahúsinu þau Böðvar, Otta og Þórunn sáu um matinn og voru foreldrar mjög þakklátir að þurfa ekki að senda börnin með nesti.


BH þakkar öllum þeim sem komu að sumarnámskeiðunum þetta árið fyrir sitt framlag og Hafnarfjarðarbæ fyrir stuðninginn. Námskeiðin eru góð þjónusta við foreldra sem þurfa að finna verkefni fyrir börn sín í sumarfríinu, fín kynning fyrir félagið og frábær þjónusta við iðkendur sem vilja halda sér við í sumarfríinu.


Sumarstarfsfólkið fagnaði góðu sumri með því að fá sér verðskuldaðan ís og nammi að loknu síðasta námskeiði
Sumarstarfsfólkið fagnaði góðu sumri með því að fá sér verðskuldaðan ís og nammi að loknu síðasta námskeiði. Á myndina vantar Unu Hrund Örvar.






bottom of page