top of page
Search

Meistaramót BH og RSL í Strandgötu um helgina

Updated: Nov 12, 2021

Helgina 12.-14.nóvember fer Meistaramót BH og RSL fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Mótið er hluti af mótaröð Badmintonsambands Íslands og mun flest af besta badmintonfólki landsins taka þátt, samtals 91 keppendandi og þar af 34 BH-ingar.


Vegna mótsins falla allar æfingar niður á föstudag og sunnudag. Hvetjum iðkendur til að koma og horfa á, það er mjög góð æfing. Einnig er hægt að bjóða sig fram að starfa sem teljarar á mótinu (sjá nánar fyrir neðan).


Dagskrá


Gróf dagskrá mótsins er eftirfarandi:


Föstudagur 12.nóvember

kl. 17:00-21:30 - Spilað fram í undanúrslit í einliðaleik í öllum flokkum - hreinn útsláttur


Laugardagur 13.nóvember

kl. 9:30-12:00 - Undanúrslit og úrslit í einliðaleik

kl.12:00-18:30 - Tvenndarleikur - riðlar þar sem efstu tvö lið komast áfram í útsláttarkeppni


Sunnudagur 14.nóvember

kl. 10:00-17:30 - Tvíliðaleikur - riðlar þar sem efstu tvö lið komast áfram í útsláttarkeppni


Niðurröðun og tímasetningar einstakra leikja má finna hér á tournamentsoftware.com. Athugið að allar tímasetingar eru birtar með fyrirvara. Ekki er ólíklegt að tímaáætlun raskist ef mikið verður um langa leiki og einnig gætu leikir byrjað fyrr en mótið gengur hraðar fyrir sig. Biðjum keppendur að vera mætta í hús 30 mín fyrir áætlaðan leiktíma.


Sóttvarnir


Vegna farsóttar og fjöldatakmarkanna sem eru í gildi þessa dagana þarf að huga vel að sóttvörnum og eru keppendur og starfsmenn beðnir að kynna sér vel neðangreindar upplýsingar.


Í húsinu eru 5 badmintonvellir og því munu að hámarki 20 leikmenn keppa í einu. Sprittbrúsar verða við hvern völl og þurfa leikmenn og starfsmenn að spritta sig inn og útaf vellinum. Það er einn dómari eða teljari á hverjum velli og 1 þjálfari leyfður með hverjum keppanda/liði á hverjum velli og því að hámarki 35 á keppnissvæðinu í einu.


Í miðju rýminu þar sem keppnissvæðið er verður mótsstjórnarborð þar sem 2 starfsmenn sitja. Dómarar (4-5) og teljarar (4-6) verða með sér merkt sæti við völl 1. Starfsmenn, teljarar og dómarar nota salerni í kennaraherbergjum á búningsklefaganginum en keppendur og þjálfarar salerni sem tilheyra þeirra biðsvæði þ.e. A eða B.


Biðsvæði A - Stúkan hægra megin


Í þessum hluta stúkunnar mega keppendur og þjálfarar frá TBR og KA sitja. 44 keppendur skráðir en eru aldrei allir á staðnum í einu. 2-3 þjálfarar.


Þeir sem tilheyra þessu svæði ganga inn um inngang sem snýr að kirkjunni og nota salerni í kjallara. Einnig hægt að hafa fataskipti þar en mælt er með að fólk komi klætt í keppnisföt á staðinn.


Biðsvæði B - Stúkan vinstra megin


Í þessum hluta stúkunnar mega keppendur og þjálfarar frá BH, TBS, UMFA og ÍA sitja. 46 keppendur skráðir en eru aldrei allir á staðnum í einu. 4-6 þjálfarar.


Þeir sem tilheyra þessu svæði ganga inn um inngang sem snýr að sjónum og nota salerni í búningsklefum sem eru 4 talsins.


Almennt


Grímuskilda er í húsinu utan badmintonvallanna.


Mælt er með að allir taki hraðpróf áður en komið er á mótið hvort sem það er heimapróf, próf hjá heilsugæslunni eða öðrum aðilum sem bjóða uppá slíkt.


Engir áhorfendur leyfðir og engin veitingasala verður á svæðinu.



Bein útsending


Boðið verður uppá beina útsendingu frá öllum völlum á mótinu á Youtube rás Badmintonfélags Hafnarfjarðar. Einnig verða lifandi úrslit á livepoints.net.


Teljarar


Iðkendur BH í U13 og eldri flokkum sem þekkja vel reglurnar og hafa keppt býðst að starfa sem teljarar á mótinu. Fimm vaktir eru í boði og fá teljarar einn bíómiða fyrir hverja vakt ásamt samloku og drykk. Áhugasamir geta skráð sig með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com. Athugið að það hafa stundum færri komist að en vilja í teljarastörfin og því hvetjum við þá sem vilja telja til að hafa samband sem fyrst.


Eftirfarandi teljaravaktir eru í boði: 1. Föstudag kl. 16:30-21:30

2. Laugardag kl. 9:30-14:00

3. Laugardag kl. 13:45-18:15

4. Sunnudag kl. 9:45-13:45

5. Sunnudag kl. 13:30-17:30



bottom of page