top of page
Search

Meistaramót BH og RSL í Strandgötu um helgina

  • annaliljasig
  • 20 hours ago
  • 2 min read

Updated: 5 hours ago

Helgina 21.-.23.nóvember fer Meistaramót BH og RSL 2025 fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Mótið er hluti af mótaröð Badmintonsambands Íslands og mun flest af besta badmintonfólki landsins taka þátt, samtals 98 keppendur frá 6 félögum, BH, Hamar, TBR, TBS, Tindastól og UMFA. Keppt verður í einliða, tvíliða og tvenndarleik í úrvals, 1. og 2. deild fullorðinna.


Vegna mótsins falla æfingar niður á föstudag frá kl.16 og sunnudag frá kl.10-15. Æfing Allir með hópsins verður seinna en venjulega eða kl.17-18 þennan sunnudag. Hvetjum iðkendur til að koma og horfa á, það er mjög góð æfing. Einnig er hægt að bjóða sig fram að starfa sem teljarar á mótinu og/eða vinna í veitingasölu í fjáröflunarskyni (sjá nánar neðar í þessari frétt).


Dagskrá


Gróf dagskrá mótsins er eftirfarandi:


Föstudagur 21.nóvember

kl. 16:30-22:30 - Einliðaleikur


Laugardagur 22.nóvember

kl.10-12:30 - Einliðaleikur

kl.13-17:30 - Tvíliðaleikur*


Sunnudagur 23.nóvember

kl.10-15 - Tvenndarleikur 


*Athugið að tvíliðaleikur í 1. deild kvenna klárast á sunnudag


Niðurröðun og tímasetningar má finna hér á tournamentsoftware.com. Athugið að allar tímasetingar eru birtar með fyrirvara. Ekki er ólíklegt að tímaáætlun raskist ef mikið verður um langa leiki og einnig gætu leikir byrjað fyrr ef mótið gengur hraðar fyrir sig. Biðjum keppendur að vera mætta í hús 30 mín fyrir áætlaðan leiktíma. Einnig mikilvægt að láta vita strax ef upp koma veikindi eða önnur óvænt forföll á netfangið bh@bhbadminton.is.


Bein útsending


Boðið verður uppá beina útsendingu frá öllum völlum á mótinu á Youtube rás Badmintonfélags Hafnarfjarðar.


Teljarar


Iðkendum BH í U13-U19 flokkum sem þekkja vel reglurnar og hafa keppt býðst að starfa sem teljarar á mótinu. Sex vaktir eru í boði og fá teljarar gjafabréf í Joe & the juice fyrir hverja vakt ásamt því að fá að borða á milli leikja. Áhugasamir geta skráð sig í Sportabler eða með því að senda póst á bh@bhbadminton.is. Athugið að það hafa stundum færri komist að en vilja í teljarastörfin og því hvetjum við þá sem vilja telja til að hafa samband sem fyrst.


Eftirfarandi teljaravaktir eru í boði (hámark 3 vaktir á mann):


  1. Föstudag - 16:15-19:30

  2. Föstudag - 19:15-22:30

  3. Laugardag - 9:45-13:30

  4. Laugardag - 13:15-17:00

  5. Sunnudag - 9:45-13:00

  6. Sunnudag - 12:45-16:00


Veitingasala


BH-ingar sem hafa áhuga á að vera með veitingasölu á mótinu geta skráð sig hér. Hagnaður af sölunni skiptist niður á þau sem taka þátt með því að selja og/eða útvega fríar eða ódýrar vörur til sölu. Tilvalið fyrir þau sem vilja safna í sinn badmintonsjóð (mótsgjöld, keppnisferðir o.þ.h.) að vera með.



Meistaramót BH og RSL 2025
Meistaramót BH og RSL 2025

 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
bottom of page