top of page
Search

Keppt í Para-badminton og Special Olympics badminton í fyrsta sinn

  • Apr 26
  • 2 min read

Íslandsmótið í Para-badminton og Íslandsleikar Special Olympics í badminton fóru fram í fyrsta sinn sunnudaginn 26.apríl 2026. Mótin fóru fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu í Hafnarfirði og voru skipulögð af Badmintonfélagi Hafnarfjarðar og Íþróttasambandi fatlaðra. Spilað var í sömu glæsilegu umgjörðinni og var á Meistaramóti Íslands í badminton dagana á undan. Íþróttafólkið sýndi glæsileg tilþrif og fengu góðan stuðning frá áhorfendum.


Íslandsmótið í Para-badminton


Á Íslandsmótinu í Para-badminton var keppt í standandi flokki kvenna og sitjandi flokki karla. Íslandsmeistari í standandi flokki kvenna var Katrín Sunna Erlingsdóttir, BH, en í 2. sæti var Agnes Lovísa Jóhannsdóttir, ÍFR. Íslandsmeistari í sitjandi flokki karla var Hákon Atli Bjarkason, ÍFR, og í 2.sæti Nóni Sær Ásgeirsson, ÍFR.


Íslandsleikar í Special Olympics badminton


Á Íslandsleikunum í Special Olympics badminton var keppt í einliðaleik drengja 15 ára og yngri, einliðaleik karla og kvenna og tvíliðaleik óháð kyni 16 ára og eldri.


Í flokki 15 ára og yngri var ekki spilað um sæti heldur fengu allir verðlaunapening. Keppendur voru Sölvi Freyr Kárason, Janiru Dulain Gunasekara og Ísak Daði Sigurjónsson, allir frá BH. Þeir spiluð bæði sín á milli og við þjálfara og voru greinilega búnir að æfa sig vel fyrir mótið.


Í flokkum 16 ára og eldri voru leikirnir bæði jafnir og skemmtilegir og fóru sumir í framlengingu. Úrslit voru eftirfarandi:


Einliðaleikur kvenna

  1. Eyrún Birta Þrastardóttir, BH

  2. Dalrós Líf Ólafsdóttir, BH


Einliðaleikur karla

  1. Jóel Bjarki Sigurðarson, BH

  2. Kristberg Jónsson, ÍA

  3. Gunnar Þór Snæberg, Nes


Tvíliðaleikur óháð kyni

  1. Jóel Bjarki Sigurðarson, BH og Kristberg Jónsson, ÍA

  2. Dalrós Líf Ólafsdóttir, BH og Eyrún Birta Þrastardóttir, BH


Nánari úrslit má finna hér á tournamentsoftware.com.


Góðir gestir veittu verðlaun


Verðlaun á mótinu veittu Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, Anna Karólína Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri Special Olympics á Íslandi og Erla Björg Hafsteinsdóttir, formaður Badmintonfélags Hafnarfjarðar. Auk verðlaunapeninga fengu allir þátttakendur vatnsbrúsa og handklæði frá RSL á Íslandi.


Frumkvæði Sólrúnar


Keppni dagsins var haldin að frumkvæði Sólrúnar Önnu Ingvarsdóttur, þjálfara og leikmanns hjá BH. Sólrún gerði lokaverkefni í íþróttafræði í Háskóla Íslands um badmintonþjálfun fólks með hreyfihömlun, þroskahömlun og aðrar sérþarfir og hefur mikinn áhuga á að efla þjálfun þessa hóps á Íslandi. Hún heldur utan um þjálfun Allir með hóps BH sem fór af stað í janúar 2025 og hefur gengið vel. Við þökkum Sólrúnu og hennar teymi fyrir frábært framtak og vonum að þessi skemmtilegu mót verði árleg hér eftir.


Meðfylgjandi myndir tók Magnús Orri Arnarson í Íþróttahúsinu við Strandgötu í dag.


Keppendur á fyrsta Íslandsmótinu í Para-badminton ásamt heiðursgestum. Frá vinstri: Sólrún Anna, Erla Björg, Nóni Sær, Hákon Atli, Agnes Lovísa, Katrín Sunna, Valdimar, Willum.
Keppendur á fyrsta Íslandsmótinu í Para-badminton ásamt heiðursgestum. Frá vinstri: Sólrún Anna, Erla Björg, Nóni Sær, Hákon Atli, Agnes Lovísa, Katrín Sunna, Valdimar, Willum.
Keppendur í Para-badminton standandi stúlkur. Agnes Lovísa í 2.sæti. Katrín Sunna Íslandsmeistari.
Keppendur í Para-badminton standandi stúlkur. Agnes Lovísa í 2.sæti. Katrín Sunna Íslandsmeistari.
Keppendur í Para-badminton sitjandi karlar. Hákon Atli Íslandsmeistari. Nóni Sær í 2.sæti.
Keppendur í Para-badminton sitjandi karlar. Hákon Atli Íslandsmeistari. Nóni Sær í 2.sæti.
Keppendur á fyrstu Íslandsleikum Special Olympics í badminton ásamt heiðursgestum sem veittu verðlaun.
Keppendur á fyrstu Íslandsleikum Special Olympics í badminton ásamt heiðursgestum sem veittu verðlaun.
Keppendur í drengjaflokki á fyrstu Íslandsleikum Special Olympics í badminton. Janiru, Sölvi og Ísak.
Keppendur í drengjaflokki á fyrstu Íslandsleikum Special Olympics í badminton. Janiru, Sölvi og Ísak.
Keppendur í kvennaflokki á fyrstu Íslandsleikum Special Olympics í badminton. Eyrún í 1.sæti og Dalrós í 2.sæti.
Keppendur í kvennaflokki á fyrstu Íslandsleikum Special Olympics í badminton. Eyrún í 1.sæti og Dalrós í 2.sæti.
Keppendur í tvíliðaleik á fyrstu Íslandsleikum Special Olympics í badminton. Jóel og Kristberg í 1.sæti. Eyrún og Dalrós í 2.sæti.
Keppendur í tvíliðaleik á fyrstu Íslandsleikum Special Olympics í badminton. Jóel og Kristberg í 1.sæti. Eyrún og Dalrós í 2.sæti.
Keppendur í karlaflokki á fyrstu Íslandsleikum Special Olympics í badminton. Jóel í 1.sæti, Kristberg í 2.sæti og Gunnar í 3.sæti.
Keppendur í karlaflokki á fyrstu Íslandsleikum Special Olympics í badminton. Jóel í 1.sæti, Kristberg í 2.sæti og Gunnar í 3.sæti.







 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page