Íslandsleikar Special Olympics og Íslandsmót í Para badminton haldið í fyrsta sinn
- 1 hour ago
- 1 min read
Íþróttasamband fatlaðra og Badmintonfélag Hafnarfjarðar halda í sameiningu fyrsta Íslandsmótið í Para badminton og fyrstu Íslandsleika Special Olympics í badminton sunnudaginn 26.apríl. Mótið fer fram í íþróttahúsinu við Strandgötu og hefst klukkan 10:00.
Keppt verður í para badminton (hreyfihamlaðir) í eftirfarandi flokkum:
WH - Sitjandi karlar og konur saman (stólar á staðnum)
SL/SU - Standandi karlar og konur saman
Allur aldur keppir saman
Sameinað ef það eru 3 eða færri í flokki
Nánari upplýsingar og skráning hér.
Keppt verður í eftirfarandi flokkum Special Olympics (þroskahamlaðir) :
16 ára og eldri (fædd 2010 og eldri) - einliðaleikur karla og kvenna
16 ára og eldri (fædd 2010 og eldri) - tvíliðaleikur blönduð kyn
15 ára og yngri (fædd 2011 og yngri) - einliðaleikur stráka og stelpna
Sameinað ef það eru 3 eða færri í flokki
Nánari upplýsingar og skráning hér.
Þátttökugjöld eru:
2.000 krónur í einliðaleik.
1.000 krónur í tvíliða- og tvenndarleik.
Aðgengi gott að húsi og á salerni
Búningsklefar ekki með góðu aðgengi fyrir hjólastóla
Upplýsingar um mótið veitir
Sólrún Anna Ingvarsdóttir
gsm. 869-1490
Skráningu lýkur föstudaginn 17.apríl.
Öll velkomin á æfingar með Allir með hóp BH á sunnudögum kl.15:00-16:00 til að æfa sig fyrir mótið. Athugið að ekki verður hægt að æfa sig á hjólastólum sunnudaginn 19.apríl þar sem badmintonkeppnismottur verða á gólfinu. Föstudaginn 17.apríl kl.18:30 verður opin æfing fyrir keppendur í hjólastólum og verða hjólastólar frá ÍF á staðnum.
Endilega látið orðið berast og hvetjið vini og kunningja til að skrá sig til þátttöku.





Comments