top of page
Search

Happdrætti BSÍ

Þessa dagana er í gangi sala á miðum í árlegu happdrætti Badmintonsambands Íslands til styrktar útbreiðslu og starfi landsliðanna. Öllum iðkendum býðst að fá miða til að selja til styrktar sambandinu en safna um leið pening í eigin sjóð. Miðinn kostar 1.500 kr og fær sölufólkið 300 kr í sölulaun. Söluhæsti einstaklingurinn í hverju félagi verður verðlaunaður með 15.000 kr gjafabréfi hjá RSL.


Verðlaunin í happdrættinu eru glæsileg, gjafabréf frá Icelandair og Ormsson, badmintonvörur frá RSL og gisting og jólahlaðborð á Hótel Örk. Dregið verður 2.desember en sölufólk þarf að skila söluhagnaði og óseldum miðum til þjálfara í síðasta lagi sunnudaginn 21.nóvember. Upplýsingar um vinningsmiða verða birtar á badminton.is.





bottom of page