top of page
Search

Góður árangur á Íslandsmóti unglinga

  • 9 hours ago
  • 2 min read

Íslandsmót unglinga fór fram í TBR húsunum helgina 10.-12.apríl. 194 voru skráð til keppni, þar af 54 frá BH. Keppt var í A og B flokkum unglinga í U13-U19 og svo var skemmtimót fyrir U11 aldurshópinn þar sem öll spiluðu 4 leiki og fengu þátttökuverðlaun að því loknu.


BH-ingar stóðu sig vel á mótinu og spiluðu marga flotta leiki. Fjórir Íslandsmeistaratitlar unnust í A flokkum og sjö í B flokkum. Þá komu 15 silfurverðlaun með heim í Hafnarfjörðinn. Til hamingju með góðan árangur.


Eftirfarandi BH-ingar unnu til verðlauna á mótinu:


Íslandsmeistarar í A flokkum

  • Erik Valur Kjartansson, tvíliðaleikur U15A

  • Aron Snær Kjartansson, tvíliðaleikur U15A

  • Birna Sól Björnsdóttir, tvíliðaleikur U17A

  • Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir, einliðaleikur U19A


Íslandsmeistarar í B flokkum

  • Katrín Sunna Erlingsdóttir, tvíliðaleikur U13B

  • Sigurður Bill Arnarsson, tvíliða og tvenndarleikur U15B

  • Kári Bjarni Kristjánsson, tvíliðaleikur U15B

  • Kristín Eldey Steingrímsdóttir, tvenndarleikur U15B

  • Mary Mjöll Kuforiji, tvíliðaleikur U15B

  • Þórdís María Róbertsdóttir, einliðaleikur U19B


Silfurverðlaun

  • Sandra María Hjaltadóttir, einliða- og tvíliðaleikur U13B

  • Sandra Rós Guðmundsdóttir, tvíliðaleikur U13B

  • Atli Heiðar Bjarnason, tvíliðaleikur U13B

  • Ýmir Örn Rolfsson, tvíliðaleikur U13B

  • Erik Valur Kjartansson, einliða U15A og tvenndar U19A

  • Ásgeir Helgi Ólason, tvíliðaleikur U17A

  • Stefán Logi Friðriksson, einliða- og tvíliðaleikur í U19A

  • Rúnar Gauti Kristjánsson, tvíliðaleikur í U19A

  • Katla Sól Arnarsdóttir, tvíliða og tvenndarleikur í U19A

  • Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir, tvíliðaleikur í U19A

  • Birkir Darri Nökkvason, einliðaleikur U19B


Til hamingju verðlaunahafar!


Hér á tournamentsoftware.com má finna öll úrslit í U13-U19 flokkunum.


Myndir af BH-ingum á mótinu má finna hér á Facebook en einnig eru margar góðar myndir á TBR Facebook og miðlum BSÍ.


BSÍ og TBR sáu í sameiningu um undirbúning og framkvæmd mótsins sem heppnaðist mjög vel. Frábær umgjörð í TBR húsinu um helgina og gott skipulag. Takk fyrir okkur.


U11 krakkarnir sem kepptu á Íslandsmótinu ásamt Unu og Sólrúnu þjálfara
U11 krakkarnir sem kepptu á Íslandsmótinu ásamt Unu og Sólrúnu þjálfara


 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page