Frábær mæting í bingó
- 57 minutes ago
- 1 min read
Sunnudaginn 22. mars var iðkendum í barna og unglingahópum félagsins boðið í bingó í stað æfinga og opins tíma sem féllu niður vegna Íslandsmóts í borðtennis. Um 100 manns mættu og var þétt setið í græna salnum. Sólrún og Una þjálfarar voru bingóstjórar og voru páskaegg, gjafabréf frá RSL og snyrtivörur frá Dekra heildverslun í verðlaun. Spilað var um 6 stóra vinninga, 10 litla og svo fengu allir lítið páskaegg áður en haldið var heim á leið.
Takk kærlega fyrir góða mætingu og aðstoðina við að bera stóla kæru iðkendur og foreldrar.





Comments