Fjölmennara en nokkru sinni á barna og unglingamótum BH
- annaliljasig
- May 13
- 2 min read
Updated: May 15
Um helgina, 9.-11.maí, fóru barna- og unglingamót Badmintonfélags Hafnarfjarðar fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Annarsvegar var það Snillingamót BH þar sem keppt var í einliðaleik á hálfum velli í U9 og U11 flokkunum og hinsvegar Unglingamót BH þar sem keppt var í tvíliða- og tvenndarleik í U13-U19 flokkunum.
Annað árið í röð var skráningarmet slegið en 238 börn og ungmenni voru skráð til þátttöku í ár, 220 í fyrra. Mótið er fjölmennasta barna og unglingamót vetrarins en leikmenn frá sjö félögum tóku þátt: BH, Hamar, TBR , TBS, UMFA, ÍA og Þrótti Vogum. Til keppni í U9 var 51 barn skráð, 68 í U11 og 125 í U13-U19. Mest aukning var í U11 flokknum þar sem fjölgaði um 42% á milli ára. Aldeilis frábær þróun og greinilegt að börn og foreldrar eru ánægð með mótin okkar.
Á Snillingamótinu spiluðu allir þátttakendur amk 4 einliðaleikslotur í 21 stig á hálfum velli. Skipt var í hópa eftir getu eins og hægt var í byrjun og svo voru leikmenn færðir á milli valla ef þurfti. Þjálfarar BH tóku að sér vallarstjórn og pössuðu uppá að allir fengju einhverja jafna leiki. Iðkendur BH í U13-U19 flokkunum sáu um að telja hjá U9 hópnum en þátttakendur í U11 skiptust á að vera teljarar. Það hefur verið hefð á Snillingamótinu að gefa sumarleg þátttökuverðlaun sem hvetja til hreyfingar og leiks útivið. Að þessu sinni fengu öll húllahring að keppni lokinni sem vakti mikla gleði.
Keppt var í tvíliða- og tvenndarleik í U13-U19 flokkunum á Unglingamóti BH þessa sömu helgi. Undanfarin ár hefur verið keppt í einliðaleik á þessu móti en gerð var breyting á því í ár til að gefa fleiri tækifæri á að keppa í tvíliða- og tvenndarleik. Spilað var í geturöðuðum riðlum eins og á flestum unglingamótum vetrarins og hefð hefur verið fyrir á mótum BH um árabil. Sigurvegarar í hverjum riðli fengu gjafabréf á Joe & the juice og 2.-5.sæti fékk grip frá RSL á Íslandi. Leikmenn sýndu frábær tilþrif og spiluðu marga jafna og skemmtilega leiki. Öll úrslit má finna hér á tournamentsoftware.com.
Kristján Pétur Hilmarsson tók flottar myndir af keppendum og áhorfendum sem eru komnar í nokkur mismundandi albúm á Facebook: Unglingamót BH - U15-U19 tvíliðaleikur föstudag
Vonum að sem flestir þátttakendur finni einhverjar myndir af sér.
Takk fyrir frábæra badmintonhelgi í Strandgötu kæru leikmenn, þjálfarar, áhorfendur teljarar og annað starfsfólk og sjálfboðaliðar.



Commentaires