top of page
Search

Fjáröflun Happdrætti BSÍ 2025

  • annaliljasig
  • Nov 11, 2025
  • 1 min read

Updated: Dec 10, 2025

Þessa dagana býðst iðkendum BH að selja miða í Happdrætti BSÍ 2025 til styrktar útbreiðslu og afreksstarfi sambandsins.


Miðinn kostar 2.500 kr og fær sölufólk 500 kr af hverjum miða í sinn sjóð. Hægt er að fá miða til að selja hjá þjálfurum eða starfsfólki í afgreiðslu. Skila þarf óseldum miðum og söluhagnaði í síðasta lagi 15. desember. Sölufólk heldur sínum sölulaunum en skilar söluhagnaði í peningum í Strandgötu eða leggur hann inn á reikning BH: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Söluhæsti einstaklingurinn í hverju félagi fær 10.000 kr gjafabréf hjá RSL. Hvetjum sem flest til að taka þátt í þessari fjáröflun.


Verðlaunin í Happdrætti BSÍ í ár eru glæsileg meðal annars gisting á Hótel Örk, badmintonvörur frá RSL og Ormsson gjafabréf. Mælum með að kaupa sér miða.



 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page