Dagskráin um helgina
- 2 days ago
- 1 min read
Það er að venju nóg um að vera hjá okkar fólki um helgina. Íslandsmót unglinga fer fram í TBR húsunum þar sem 54 BH-ingar taka þátt en einnig verða æfingar í Strandgötu.
Æfingar og opinn tími í Strandgötu
Það verða hefðbundnar æfingar í Strandgötu um helgina. Hvetjum þau sem ekki eru að keppa til að mæta á sínar æfingar. Einnig verður opinn tími á sunnudag kl.13:30-15:00 þar sem BH-ingar geta komið og spilað badminton með vinum og fjölskyldu.
Íslandsmót unglinga
Íslandsmót unglinga í badminton fer fram í TBR húsunum 10.-12.apríl. 194 eru skráð til keppni, þar af 54 frá BH.
Niðurröðun og tímasetningar fyrir keppni í U13-U19 má finna hér á tournamentsoftware.com.
Keppendur í U11 spila á laugardag og mæta kl.15:45. Keppni fer fram milli kl.16 og 18 en í lokin verður myndataka og fá allir þátttökuverðlaun.
Hvetjum fólk til að fjölmenna í TBR húsið og fylgjast með spennandi keppni. Gangi ykkur vel og góða skemmtun krakkar.





Comments