top of page
Search

Breyting á dagskránni á sunnudag

11 minutes ago
1 min read

Sunnudaginn 13. september verður smá breyting á dagskránni í Strandgötu. Allir með æfingin og opinn tími víxlast.


Allir með æfingin verður klukkan 13:00-14:00 þennan dag því von er á tökuliði í heimsókn sem er að taka upp auglýsingar fyrir Allir með. Búið er að senda öllum skráðum upplýsingar um þetta í Abler.


Opinn tími fyrir BH-inga þar sem velkomið er að taka fjölskyldu og vini með sér í badminton verður klukkan 14:00-16:00 sunnudaginn 13. september. Venjulega er opni tíminn kl.13-15 en stundum þarf að færa hann til vegna viðburða í húsinu. Látum alltaf vita hér á vefnum og á Facebook ef breytingar verða.


Aðrir æfingatímar á sunnudaginn eru óbreyttir, U9 með foreldrum kl.10-11, U13-U15 hópurinn kl.11-12 og Unglingaspil kl.12-13.


Sjáumst hress í Strandgötu.



 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page