BH í 2.sæti í Deildakeppni BSÍ
- 5 days ago
- 1 min read
Deildakeppni BSÍ 2025-2026 var spiluð á tveimur keppnishelgum, í nóvember og mars. Keppt var í 1. deild og 2. deild og átti BH fimm lið í keppninni. Lið BH urðu í 2.sæti í bæði 1. og 2. deild.
BH - B var í 2.sæti í 1. deild og ansi nálægt því að ná 1. sætinu en það var TBR-A sem sigraði. BH-H voru í 3.sæti og BH/TBS Bakverðir í 5.sæti í deildinni.
BH - Vindhögg var í 2.sæti í 2. deild. Deildin var mjög jöfn en þrjú lið voru jöfn að stigum og þurfti að telja lotur til að útkljá hver fengi silfrið. BH - Kleinur urðu í 6.sæti í deildinni.
Úrslit allra leikja má finna hér á tournamentsoftware.com.






Comments