top of page
Search

BH náði frábærum árangri á Íslandsmótunum í borðtennis

  • 28 minutes ago
  • 2 min read

Íslandsmót fullorðinna í borðtennis fór fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu 14.mars og 21.-22.mars. Fyrri helgina var keppt í 1. og 2.flokki fullorðinna og seinni helgina í meistaraflokki. BH-ingar náðu frábærum árangri á mótinu, unnu 3 titla, 3 silfurverðlaun og 4 brons. Á Íslandsmóti unglinga sem haldið var á Selfossi í febrúar náðist einnig góður árangur en þar fengu BH-ingar 12 verðlaun.


Sól Kristínardóttir Mixa frá BH varð Íslandsmeistari í einliðaleik kvenna og verður úrslitaleikurinn eflaust lengi í manna minnum. Í úrslitum mætti hún Guðbjörgu Völu Gunnarsdóttur frá KR og byrjaði ekki vel, var undir 3-0 í lotum og 8-9 í fjórðu lotunni þegar hún náði loks að snúa spilinu við. Sól vann að lokum leikinn 4-3 en oddalotan fór 12-10. Æsispennandi og skemmtilegur leikur fyrir áhorfendur. Sól hefur einu sinni áður orðið Íslandsmeistari í einliðaleik, það var árið 2024 en hún á auk þess nokkra titla í tvíliða- og tvenndarleik frá fyrri árum. Í ár fékk hún brons bæði í tvíliða- og tvenndarleik.


Þrír aðrir BH-ingar unnu til verðlauna í meistaraflokki. Birgir Ívarsson var í 2.sæti í einliðaleik karla, 3.-4.sæti ásamt Sól í tvenndarleik og tvíliðaleik ásamt Gesti Gunnarssyni frá KR. Birgir á marga titla frá fyrri árum í tvíliðaleik en þetta var í fyrsta sinn sem hann kemst í úrslit í einliðaleik. Þorbergur Freyr Pálmarsson og Kristján Ágúst Ármann voru í öðru sæti í tvíliðaleik karla en þetta var í fyrsta sinn sem þeir komast í úrslit í meistaraflokki.


Nánari úrslit frá keppni í meistaraflokki hér.


Á Íslandsmóti fullorðinna í 1. og 2.flokki urðu tveir BH-ingar Íslandsmeistarar. Heiðar Leó Sölvason sigraði í einliðaleik karla í 1.flokki og Hergill Frosti Friðriksson í 2.flokki.


Nánari úrslit frá keppni í 1. og 2.flokki hér.


Íslandsmót unglinga fór fram á Selfossi í febrúar. Þar unnu átta BH-ingar til verðlauna. Kristján Ágúst Ármann og Heiðar Leó Sölvason urðu Íslandsmeistarar í tvíliðaleik í U18 en Kristján vann auk þess silfur í einliðaleik og Heiðar brons. Í tvenndarleik í U18 fengu þeir báðir brons. Sigurður Einar Aðalsteinsson og Benjamín Bjarki Magnússon urðu Íslandsmeistarar í tvíliðaleik í U15 en félagar þeirra þeir Vincent Daniel Guerrero Manaure og Sindri Þór Rúnarsson fengu silfrið. Stefán Bjarki Bjarkason og Magnús Loftsson sem einnig eru frá BH fengu brons. Vincent vann einnig brons í einliðaleik í U13 og þeir Sindri og Sigurður í U15.


Nánari úrslit frá Íslandsmóti unglinga hér


Frábær árangur hjá borðtennisfólki BH sem æfir af kappi á 2.hæð í Íþróttahúsinu við Strandgötu.


BH-ingar ánægðir með árangurinn. Efri röð frá vinstri: Ingimar, þjálfari, Birgir, Tómas, þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Þorbergur Freyr, Sól, Hergill Frosti.
BH-ingar ánægðir með árangurinn. Efri röð frá vinstri: Ingimar, þjálfari, Birgir, Tómas, þjálfari. Neðri röð frá vinstri: Þorbergur Freyr, Sól, Hergill Frosti.



Sól Kristínardóttir Mixa Íslandsmeistari í einliðaleik kvenna. Guðbjörg í 2.sæti og Helena Árnadóttir í 3.sæti en þær koma báðar úr KR.
Sól Kristínardóttir Mixa Íslandsmeistari í einliðaleik kvenna. Guðbjörg í 2.sæti og Helena Árnadóttir í 3.sæti en þær koma báðar úr KR.
Birgir Ívarsson var í 2.sæti í einliðaleik karla. Ingi Darvis frá Víkingi varð Íslandsmeistari. Benedikt Aron, Víkingi og Davíð Jónsson, KR voru í 3.-4.sæti.
Birgir Ívarsson var í 2.sæti í einliðaleik karla. Ingi Darvis frá Víkingi varð Íslandsmeistari. Benedikt Aron, Víkingi og Davíð Jónsson, KR voru í 3.-4.sæti.

BH-ingarnir Kristján Ágúst og Heiðar Leó Íslandsmeistarar í tvíliðaleik U18. Pör frá KR og Selfossi í 2. og 3.sæti.
BH-ingarnir Kristján Ágúst og Heiðar Leó Íslandsmeistarar í tvíliðaleik U18. Pör frá KR og Selfossi í 2. og 3.sæti.
BH-ingar í 1. og 2.sæti í tvíliðaleik í U15. Benjamín og Sigurður í 1.sæti, Sindri og Vincent í 2.sæti. Geir og Sævar frá Garpi í 3.sæti ásamt Magnúsi og Stefáni frá BH sem vantar á myndina.
BH-ingar í 1. og 2.sæti í tvíliðaleik í U15. Benjamín og Sigurður í 1.sæti, Sindri og Vincent í 2.sæti. Geir og Sævar frá Garpi í 3.sæti ásamt Magnúsi og Stefáni frá BH sem vantar á myndina.


 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page