top of page
Search

BH bingó á laugardaginn

Updated: Nov 6, 2020

Á laugardaginn 7.nóvember kl.11:00-12:00 ætlum við að vera með rafrænt BH bingó. Hvetjum alla BH-inga til að mæta og taka fjölskyldumeðlimi með sér. Það verða fjölbreytt og skemmtileg verðlaun.

Bingóið verður á zoom.us og notast verður við kerfið bingomaker.com. Best er að fylgjast með bingóinu í gegnum eitt tæki (tölvu, spjaldtölvu eða síma) og vera svo með bingóspjaldið sitt í síma eða öðru tæki. Gengur líka að vera með marga glugga opna í tölvunni ef það hentar betur. Gott að hver og einn fjölskyldumeðlimur hafi hver sinn síma eða tæki til að taka þátt í og muna að vera með allt vel hlaðið. Hljómar kannski flókið en þetta verður allt vel útskýrt í upphafi á laugardaginn. Búið er að senda vefslóð á bingóið í tölvupósti til allra skráðra iðkenda. Endilega hafið samband á netfangið bhbadminton@hotmail.com ef pósturinn hefur ekki borist.




Comments


bottom of page