top of page
Search

Badmintonveisla fimmtudag til sunnudags

  • 2 days ago
  • 2 min read

Það verður sannkölluð badmintonveisla í Íþróttahúsinu við Strandgötu næstu daga. Meistaramót Íslands í badminton hefst á fimmtudag, Sumardaginn fyrsta, og stendur fram á laugardag. Á sunnudag fer svo Íslandsmótið í Para-badminton og Íslandsleikar Special Olympics í badminton fram í fyrsta sinn.  Strandgatan er komin í sparifötin og við vonum að sem flest taki þátt á einn eða annan hátt.


Dagskrá


Á Meistaramóti Íslands er keppt um Íslandsmeistaratitla í úrvals, 1. og 2. deild fullorðinna. Gróf dagskrá helgarinnar er eftirfarandi:


Fimmtudagur 23.apríl - Sumardagurinn fyrsti

09:00-12:30 - Keppni í einliðaleik

12:00-15:30 - Keppni í tvíliðaleik

15:00-17:30 - Keppni í tvenndarleik Engar æfingar þennan dag


Föstudagur 24.apríl

13:30-17:00 - Keppni í einliðaleik

16:30-18:30 - Keppni í tvíliðaleik

18:30-20:00 - Keppni í tvenndarleik Engar æfingar þennan dag


Laugardagur 25.apríl

09:00-11:30 - Úrslitaleikir í 1. og 2. deild

11:30-13:00 - Hlé

13:00-16:30 - Úrslitaleikir í úrvalsdeild


Niðurröðun og tímasetningar einstakra leikja má finna hér á tournamentsoftware.com.


Á Íslandsleikum Special Olympics verður keppt í flokkum 16 ára og eldri og 15 ára og yngri en á Íslandsmótinu í Para-badminton verður keppt í flokki SL/SU konur (standandi) og WH karlar (sitjandi). Gróf dagskrá dagsins er eftirfarandi:


Sunnudagur 26.apríl

10:00-12:00 - Keppt í einliða- og tvíliðaleik - Special Olympics

12:00 - Verðlaunaafhending - Íslandsleikar Special Olympics í badminton

12:30-13:00 - Keppt í einliðaleik - Para-badminton

13:00 - Verðlaunaafhending - Íslandsmótið í Para-badminton 13:30-15:30 - Opinn tími - hægt að koma og spila með vinum eða fjölskyldu


Niðurröðun og tímasetningar einstakra leikja í keppnum sunnudagsins koma inná tournamentsoftware.com þegar nær dregur helginni.


Hvetjum alla iðkendur til að fjölmenna á þessa viðburði og fylgjast með skemmtilegri keppni. Einnig hægt að bjóða sig fram í að starfa sem teljarar á Meistaramótinu og starfa í veitingasölu í fjáröflunarskini.


Teljarar óskast til starfa


Öllum áhugasömum iðkendum í U13 og eldri sem hafa einhverja reynslu af keppni býðst að starfa sem teljarar á mótinu. Teljarar fá bíómiða, samloku og drykk að launum fyrir hverja vakt en hægt er að velja á milli eftirfarandi vakta:


1. Fimmtudagur kl.8:45-11:45

2. Fimmtudagur kl.11:30-14:45

3. Fimmtudagur kl.14:30-17:45

4. Föstudagur kl.13:45-17:00

5. Föstudagur kl.16:45-20:00


Hægt er að skrá sig í Sportabler eða með því að senda póst á bh@bhbadminton.is og gildir reglan fyrstir koma fyrstir fá.


Fjáröflunarmöguleiki í veitingasölu


BH-ingum býðst að safna í sinn badmintonsjóð með því að taka þátt í veitingasölu á Meistaramóti Íslands. Hægt er að taka þátt með því að útvega veitingar og/eða starfa við afgreiðslu veitinga. Skráning fer fram hér eða í gegnum netfangið bh@bhbadminton.is. Skráningu lýkur þriðjudaginn 21. apríl.


Hlökkum til að sjá ykkur sem flest í badmintonveislunni í Strandgötunni næstu daga.


Íþróttahúsið við Strandgötu í badminton sparifötunum
Íþróttahúsið við Strandgötu í badminton sparifötunum










 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page