Allir með í badminton verkefnið heldur áfram
- annaliljasig
- Aug 25
- 1 min read
Updated: Aug 28
Í byrjun árs fórum við hjá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar af stað með nýjan æfingahóp sem kallast Allir með í badminton. Hópurinn er fyrir fólk á öllum aldri með þroskahömlun, hreyfihömlun eða aðrar sérþarfir og áhuga á að prófa badminton.
Æfingar gengu mjög vel á vorönn 2025 og halda því áfram á haustönn. Æfingarnar verða á sunnudögum klukkan 15:00-16:00 í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Fyrsta æfing verður sunnudaginn 7. september. Skráning fer fram hér í Abler. Velkomið að koma í prufutíma áður en skráð er.
Þjálfari er Sólrún Anna Ingvarsdóttir badmintonþjálfari og íþróttafræðingur. Hún fær með sér aðstoðarfólk eftir þörfum.
Hægt er að fá lánaða spaða frítt á staðnum og tekið vel á móti öllum.
Það gætu orðið tilfærslur á æfingatímanum einhver skipti vegna viðburða í húsinu en við látum skráða vita um það í Abler appinu og með tölvupósti ásamt því að setja tilkynningu á vef félagsins og Facebook síðu.





Comments