Aðalfundur BH 2026
- 3 minutes ago
- 1 min read
Aðalfundur Badmintonfélags Hafnarfjarðar 2026 verður haldinn þriðjudaginn 21.apríl kl.21:00 í Álfafelli, sal á annarri hæð Íþróttahússins við Strandgötu.
Dagskrá aðalfundar er samkvæmt lögum félagsins eftirfarandi:
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar um starfsemi ársins.
Lesnir og skýrðir skoðaðir reikningar.
Lagabreytingar.
Aðrar tillögur.
Ákveðin árgjöld.
Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
Kosinn formaður.
Kosinn fulltrúi ungu kynslóðarinnar.
Kosnir aðrir stjórnarmenn.
Kosnir tveir skoðunarmenn.
Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta.
Þau sem vilja bjóða sig fram í stjórn eða vilja leggja fram einhverjar tillögur fyrir fundinn mega gjarnan hafa samband við framkvæmdastjóra í gegnum netfangið bh@bhbadminton.is.
Ársskýrsla, ársreikningar og tillögur fundarins verða birtar hér þegar nær dregur.





Comments