Aðalfundur BH 2025
- annaliljasig
- Mar 17
- 1 min read
Updated: Mar 27
Aðalfundur Badmintonfélags Hafnarfjarðar 2025 verður haldinn þriðjudaginn 25.mars kl.20:30 í Álfafelli, sal á annarri hæð Íþróttahússins við Strandgötu.
Dagskrá aðalfundar er samkvæmt lögum félagsins eftirfarandi:
Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar um starfsemi ársins.
Lesnir og skýrðir endurskoðaðir reikningar.
Lagabreytingar.
Aðrar tillögur.
Ákveðin árgjöld.
Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
Kosinn formaður.
Kosnir aðrir stjórnarmenn.
Kosnir tveir skoðunarmenn.
Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta, bæði iðkendur og forráðamenn.
Þau sem vilja bjóða sig fram í stjórn eða vilja leggja fram einhverjar tillögur fyrir fundinn mega gjarnan hafa samband við framkvæmdastjóra í gegnum netfangið bh@bhbadminton.is. Fulltrúi ungu kynslóðarinnar í badmintondeild síðustu ár, Freyr Víkingur, gefur ekki kost á sér áfram og því vantar nýjan fulltrúa þeirra í stjórn.
Smellið hér til að skoða ársreikning félagins árið 2024.
Smellið hér til að skoða ársskýrslu félagsins fyrir árið 2024.
Smellið hér til að skoða tillögu um breytingar á lögum félagsins sem tekin verður fyrir á fundinum.
Smellið hér til að skoða tillögu um stofnun húsnæðisnefndar BH.

Comments