Aðalfundur Badmintonfélags Hafnarfjarðar 2023 verður haldinn þriðjudaginn 28.mars kl.20:30 í Álfafelli, sal á annarri hæð Íþróttahússins við Strandgötu.
Dagskrá aðalfundar er samkvæmt lögum félagsins eftirfarandi:
Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar.
Kosning fundarstjóra og fundarritara.
Skýrsla stjórnar um starfsemi ársins.
Lesnir og skýrðir endurskoðaðir reikningar.
Lagabreytingar.
Aðrar tillögur.
Ákveðin árgjöld.
Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun næsta starfsárs.
Kosinn formaður.
Kosnir aðrir stjórnarmenn.
Kosnir tveir skoðunarmenn.
Önnur mál.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta, bæði iðkendur og forráðamenn.
Þau sem vilja bjóða sig fram í stjórn eða vilja leggja fram einhverjar tillögur fyrir fundinn mega gjarnan hafa samband við framkvæmdastjóra í gegnum netfangið bh@bhbadminton.is
Comentários