top of page
Search

Skráning er hafin í vetrarstarfið

  • 19 hours ago
  • 1 min read

Vetrarstarfið hjá Badmintonfélagi Hafnarfjarðar hefst mánudaginn 31.ágúst.


Skráning í hópa er hafin og fer fram hér í Abler. Allar upplýsingar um æfingatíma og æfingagjöld má finna hér á vefnum eða með því að smella á slóðirnar hér fyrir neðan.


Ef einhver vilja koma og prófa áður en þau skrá sig þarf að senda póst á bh@bhbadminton.is með upplýsingum um kennitölu iðkanda til að taka frá pláss. Ekki er hægt að koma á prufuæfingar í hópa sem þegar eru fullbókaðir en hægt er að skrá á biðlista og við höfum samband þegar er hægt að koma og prufa.


Badminton


Eigum lausa badmintonvelli til leigu fyrir þau sem vilja koma og spila badminton 2-4 saman. Stakur tími kostar 6.100 kr/völlurinn en fastur tími frá september til maí 176.000 kr/völlurinn Stjörnumerktir tímar* eru ódýrari eða 89.500 kr/völlurinn.


Lausir tímar:

  • Þriðjudagar kl.21:00-22:00

  • Þriðjudagar kl.22:00-23:00*

  • Miðvikudagar kl.21:45-22:45*

  • Fimmtudagar kl.21:00-22:00

  • Föstudagar kl.11:50-12:50*


Bókanlegt í gegnum bh@bhbadminton.is. 



Borðtennis


Hægt er að leigja staka tíma í borðtennis á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum kl.20:30-21:30 og föstudögum kl.17-18. Stakur tími kostar 3.500 kr/klst fyrir hvert borð. Best að hringja á undan í íþróttahúsið og athuga hvort það sé ekki örugglega laust í síma 5551711.



Aðstoð við skráningu og nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Lilja framkvæmdastjóri BH í gegnum netfangið bh@bhbadminton.is og í síma 8686361.


Hlökkum til að fá bæði gamla og nýja iðkendur í hús aftur eftir gott sumarfrí.


Sjáumst í Strandgötu!


Allar æfingar í badminton og borðtennis fara fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu
Allar æfingar í badminton og borðtennis fara fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu


 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page