top of page
Search

Næstu mót

Strax í byrjun janúar eru badmintonmót á dagskrá sem við hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér. Hvetjum einnig iðkendur sem hafa áhuga á keppni til að kíkja á mótaskrá Badmintonsambandsins hér á badminton.is og setja mót sem þau stefna á í dagatalið hjá sér. Skráningu lýkur yfirleitt viku fyrir mót en upplýsingar um nákvæman tíma koma í Sportabler og á vefinn okkar badmintonfelag.is um leið og upplýsingar berast.


Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um næstu mót sem hægt er að skrá sig á og neðst eru almennar upplýsingar um badmintonmót.


Meistaramót TBR - 7.-8.janúar 2023


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog


Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.


Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í riðlum í einliðaleik en beinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik.


Mótsgjöld: 4.000 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur miðvikudaginn 28.desember: https://forms.gle/Hq7eTZsH8EUHKQjYA Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


Gríslingamót ÍA - 8.janúar 2023


Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi. ATHUGIÐ að íþróttahúsið við Vesturgötu er hnetu- og fiskfrítt svæði og eru harðfiskur, Collab og allar vörur sem innihalda hnetur bannaðar í húsinu. Vörur sem innihalda hnetur eru t.d Corny og flestar orkustangir, margar tegundir af kexi, Nutella, hnetusmjör og fleira.


Flokkar: U9 og U11 - Skemmtilegt mót fyrir þau sem hafa gaman að því að keppa og þekkja orðið vel reglurnar.


Keppnisfyrirkomulag: Krökkunum verður skipt upp í lið og haldin skemmtileg keppni milli liða í einliðaleik. Gert er ráð fyrir að U9 spili kl.10-12 en tímasetningar koma betur í ljós þegar skráningar hafa borist.


Mótsgjöld: 1.000 kr og fá allir glaðning fyrir þátttökuna.


Skráning: Skráning og greiðsla mótsgjalds fer fram í Sportabler og lýkur miðvikudaginn 4.janúar. Einnig hægt að skrá börn með því að senda póst á bh@bhbadminton.is og leggja mótsgjaldið inná: 0545-26-5010 kt. 501001-3090


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og styttra komna, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2022-2023 U9 - fædd 2014 og síðar U11 - fædd 2012 og 2013 U13 - fædd 2010 og 2011 U15 - fædd 2008 og 2009 U17 - fædd 2006 og 2007 U19 - fædd 2004 og 2005



bottom of page