top of page
Search

Glæsilegt Íslandsmót öldunga

  • annaliljasig
  • Nov 9, 2024
  • 1 min read

Laugardaginn 9.nóvember fór Íslandsmót öldunga fram hjá okkur í Strandgötu. Um 40 leikmenn 35 ára og eldri tóku þátt, þar af 10 BH-ingar. Okkar fólk stóð sig vel og vann til fimm silfurverðlauna.


Erla Rós Heiðarsdóttir var í öðru sæti í einliðaleik kvenna 35 ára og eldri. Guðjón Ingi Guðmundsson var í öðru sæti í bæði tvíliða- og tvenndarleik í trimmflokki. Í tvíliðaleik spilaði hann með Jóni Sólmundssyni og tvenndarleik með Auði Kristínu Árnadóttur. Nánari úrslit má finna hér á tournamentsoftware.com.


Mótið var glæsilegt, vel skipulagt af BSÍ og í flottri umgjörð á keppnismottum BH. BSÍ bauð uppá súpu í hádeginu sem starfsfólk BH útbjó.


Verðlaunahafar BH á Íslandsmóti öldunga. Frá vinstri: Guðjón Ingi, Jón Sól, Erla Rós, Auður Kristín og Guðjón Ingi.
Verðlaunahafar BH á Íslandsmóti öldunga. Frá vinstri: Guðjón Ingi, Jón Sól, Erla Rós, Auður Kristín og Guðjón Ingi.





 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
bottom of page