top of page
Search

Fyrri BADÍS búðirnar vel heppnaðar

  • Aug 21
  • 2 min read

Updated: Aug 27

BADÍS, nýjar badmintonæfingabúðir, sem TBR, BH og ÍA standa saman að fóru fram á Akranesi í fyrsta sinn dagana 17.-19.ágúst 2026. Þar komu saman 36 leikmenn fæddir á árunum 2012–2015 frá sex badmintonfélögum víðsvegar af landinu. BADÍS búðir fyrir leikmenn fædda 2011 og eldri eru síðan á dagskrá helgina 11.-13. september og verður skráning opin til 3. september hér í Abler.


Óhætt er að segja að fyrri æfingabúðirnar hafi gengið einstaklega vel. Þrír skemmtilegir og viðburðaríkir dagar á Akranesi fóru fram í góðum félagsskap þar sem þátttakendur fengu að njóta góðrar badmintonþjálfunar, fjölbreyttrar hreyfingar og skemmtilegrar dagskrár utan vallar. Einnig gafst þátttakendum tækifæri til að kynnast betur og styrkja félagstengsl við badmintoniðkendur úr öðrum félögum. Stemningin í búðunum var frábær og það var virkilega gaman að sjá hversu vel þátttakendur tóku þátt í bæði æfingum og félagslegri dagskrá.


Aðstaðan á Akranesi er einstaklega góð til að halda æfingabúðir eins og þessar. Í íþróttasalnum eru 7 badmintonvellir sem auðvitað voru vel nýttir en í sama húsnæði er einnig fullbúinn fimleikasalur, stór klifurveggur og 3 brauta keilusalur sem frábært var að nýta milli badmintonæfinga í samstarfi við félögin á staðnum. Einnig er í húsnæðinu eldhús og aðstaða til að borða auk minni íþróttasala sem þátttakendur gistu í á dýnum sem ÍA á. Þá var stutt að ganga í sund þar sem gott var að skola af sér og slaka á eftir erfiðar æfingar.


Þjálfarar í fyrri æfingabúðunum voru Kristófer Darri, Una Hrund, Sólrún Anna og Kjartan Ágúst. Þau stýrðu fjölbreyttum æfingum þar sem markmiðið var að efla tæknilega færni, leikskilning, hreyfigetu og keppnishugsun. Spurningakeppni, leikgreining og ýmsir hópeflisleikir voru einnig hluti af dagskránni hjá þeim. Irena Rut og Karitas sáu um matinn sem var mikil ánægja með en þátttakendur fengu morgunmat, heitan mat tvisvar á dag ásamt heimabökuðu góðgæti og ávaxta milli mála. Anna Lilja sá um að halda utan um dagskrá, samskipti og skipulag. Þökkum þeim öllum fyrir frábært framlag.


Von okkar er að BADÍS æfingabúðirnar verði árlegur viðburður sem styrkir bæði badmintoniðkendur og badmintonfélög landsins, gefur leikmönnum tækifæri til að kynnast þvert á félög og stuðlar að áframhaldandi uppbyggingu íþróttarinnar.


Áfram badminton á Íslandi!


Þátttakendur á fyrri BADÍS búðunum komu frá BH, Hamar, ÍA, TBR, TBS og UMFA
Þátttakendur á fyrri BADÍS búðunum komu frá BH, Hamar, ÍA, TBR, TBS og UMFA

Starfsfólk fyrri BADÍS búðanna. Frá vinstri: Una Hrund, Sólrún Anna, Kristófer Darri, Kjartan Ágúst, Irena Rut og Karitas.
Starfsfólk fyrri BADÍS búðanna. Frá vinstri: Una Hrund, Sólrún Anna, Kristófer Darri, Kjartan Ágúst, Irena Rut og Karitas.

Kristófer Darri var með frábæra leikgreiningarkennslu fyrir krakkana.
Kristófer Darri var með frábæra leikgreiningarkennslu fyrir krakkana.

Fín aðstaða til að gista og góðar vindsængur á Vestugötunni
Fín aðstaða til að gista og góðar vindsængur á Vestugötunni
Sólrún með góða alvöru upphitun
Sólrún með góða alvöru upphitun
Morgunmaturinn var góður
Morgunmaturinn var góður
Þjálfari frá Fimleikafélagi Akraness var með góða æfingu sem endaði svo á frjálsum leik á trampólínum og í grifju.
Þjálfari frá Fimleikafélagi Akraness var með góða æfingu sem endaði svo á frjálsum leik á trampólínum og í grifju.
Flottur keilusalur í kjallara íþróttahússins
Flottur keilusalur í kjallara íþróttahússins
Á sumum æfingum var skipt eftir kynjum. Þessi mynd er tekin á stelpuæfingu.
Á sumum æfingum var skipt eftir kynjum. Þessi mynd er tekin á stelpuæfingu.
Strákaæfing
Strákaæfing
Þjálfarar frá Klifurfélagi Akranesi leyfðu krökkunum að prófa flotta klifurvegginn í íþróttahúsinu og kenndu helstu trikk.
Þjálfarar frá Klifurfélagi Akranesi leyfðu krökkunum að prófa flotta klifurvegginn í íþróttahúsinu og kenndu helstu trikk.
Una og Sólrún voru með skemmtilega spurningakeppni þar sem meðal annars átti að finna út hvaða tveimur badmintonspilurum var búið að blanda saman í einn.
Una og Sólrún voru með skemmtilega spurningakeppni þar sem meðal annars átti að finna út hvaða tveimur badmintonspilurum var búið að blanda saman í einn.
Tikka masala kjúklingur í kvöldmat fyrsta daginn
Tikka masala kjúklingur í kvöldmat fyrsta daginn
Fyrir morgunmat var boðið uppá morgunskokk með Kristófer
Fyrir morgunmat var boðið uppá morgunskokk með Kristófer

 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
blue-gray.png
bottom of page