Dagskráin um helgina
- 1 day ago
- 1 min read
Um helgina verða haldin tvö Íslandsmót í Strandgötu og því verða breytingar á æfingum á sunnudag. Þá keppa 23 BH-ingar á Landsbankamót ÍA á Akranesi.
Breyting á æfingum á sunnudag
Á laugardaginn verður Íslandsmót í borðtennis í Strandgötu og á sunnudag Íslandsmót í dansi. Vegna þessa verður enginn opinn tími á sunnudag og æfingar breytast aðeins. Dagskráin verður eftirfarandi á sunnudaginn:
Kl.10:00-11:00 - U9 - borðtennis og leikir - foreldrar ekki með í þetta skiptið
kl.11:00-12:00 - U13-U15 - borðtennis og leikir
kl.12:00-13:00 - U17-U19 og keppnishópur - ræktaræfing
kl.13:00-14:00 - Allir með hópurinn - borðtennis og leikir
Landsbankamót ÍA á Akranesi
Bæði laugardag og sunnudag fer Landsbankamót ÍA fram á Akranesi. 23 BH-ingar taka þátt í mótinu. Niðurröðun og tímasetningar einstakra leikja má finna hér á tournamentsoftware.com. Alltaf gott að kíkja á leikina kvöldinu fyrir keppni ef ske kynni að einhverjar breytingar hafi orðið vegna forfalla. Mikilvægt að láta Kjartan íþróttastjóra vita ef upp koma veikindi eða önnur óvænt forföll í síma 8235332.
Góða helgi!





Comments