Skemmtilegt mót í Mosó um helgina
- 12 minutes ago
- 1 min read
Unglingamót Aftureldingar fór fram í Mosfellsbænum um helgina, 49 BH-ingar tóku þátt og stóðu sig vel.
U9 og U11 flokkarnir kepptu í einliðaleik á laugardagsmorgun. Spiluðu 3-5 lotur og fengu svo viðurkenningu fyrir þátttökuna að keppni lokinni.
U13-U19 flokkarnir kepptu í tvíliðaleik á laugardaginn og einliðaleik á sunnudaginn. Keppt var í getuskiptum riðlum og fengu sigurvegarar í hverjum riðli verðlaun. BH-ingar unnu 28 verðlaun á mótinu sem er glæsilegur árangur. Öll úrslit í U13-U19 flokkunum má finna hér á tournamentsoftware.com.
Hér á Facebook má finna nokkrar myndir af okkar fólki á mótinu.
Virkilega skemmtilegt og vel skipulagt mót hjá Badmintondeild Aftureldingar.





Comments