top of page
Search

Næstu mót

Updated: Jan 2, 2019

Við BH-ingar erum komin í jólafrí til 2.janúar. Það verða þó nokkrar æfingar í jólafríinu fyrir eldri keppnishópana sem eru að fara í mót strax fyrstu helgina í janúar.

Næstu mót sem BH-ingar geta skráð sig á eru eftirfarandi:

Jólamót trimmara - 30.desember

Staðsetning: TBR húsið Flokkar: Trimmflokkur, 18 ára og eldri sem ekki spila í A flokk og hafa aldrei verið í m.fl. Tvíliðaleikur þar sem leikmenn eru dregnir saman í hverri umferð. Mótsgjöld: 2.200 krónur á mann Skráningu á staðnum - keppni hefst klukkan 11:00.

Meistaramót TBR - 5.-6.janúar

Staðsetning: TBR húsið Flokkar: Meistara, A og B flokkur fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Keppnisfyrirkomulag: Einliðaleikur í riðlum en beinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik Mótsgjöld: 3.500 krónur á mann í einliðaleik og 3.000 krónur á mann tvíliða- og tvenndarleik. Skráningu lýkur: Laugardaginn 29.nóvember

Gríslingamót ÍA - 13.janúar

Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi Flokkar: U9 og U11 - hentar bæði fyrir byrjendur og lengra komna Keppnisfyrirkomulag: Skipt í lið og spilaður einliðaleikur. Mjög skemmtilegt form. Gera má ráð fyrir að U9 spili kl.10-12 og U11 kl.13-15. Mótsgjöld: 500 kr á mann Skráningu lýkur: Miðvikudaginn 9.janúar

Almennt um mót

BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp.

Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.

B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti. Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.

Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.

Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.

Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2018-2019

U9 - fædd 2010 og síðar U11 - fædd 2008 og 2009 U13 - fædd 2007 og 2006 U15 - fædd 2005 og 2004 U17 - fædd 2003 og 2002 U19 - fædd 2001 og 2000


bottom of page