Íslandsmót unglinga fór fram í Mosfellsbæ um helgina. 35 BH-ingar tóku þátt í mótinu og stóðu sig vel. Sextán BH-ingar unnu til 26 verðlauna á mótinu, þar af níu Íslandsmeistaratitla. Þær Halla Stella Sveinbjörnsdóttir og Una Hrund Örvar náðu þeim frábæra árangri að sigra þrefalt í sínum flokkum, Halla í U13 og Una í U19.
Íslandsmeistarar BH voru:
Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, U13 einliða-, tvíliða- og tvenndarleikur
Katla Sól Arnarsdóttir, U13 tvíliðaleikur
Brynjar Gauti Pálsson, U15B einliðaleikur
Una Hrund Örvar, U19 einliða-, tvíliða- og tvenndarleikur
Gabríel Ingi Helgason, U19 tvenndarleikur
Silfurverðlaunahafar BH voru:
Erik Valur Kjartansson, U11 tvíliðaleikur
Ásta Dísa Hlynsdóttir, U11 tvíliðaleikur
Emilía Ísis Nökkvadóttir, U11 tvíliðaleikur
Björn Ágúst Ólafsson, U13B einliðaleikur
Guðbjörg Skarphéðinsdóttir, U15 einliða- og tvenndarleikur
Jón Víðir Heiðarsson, U15 tvenndarleikur
Rakel Rut Kristjánsdóttir, U17 einliða-, tvíliða- og tvenndarleikur
Kristian Óskar Sveinbjörnsson, U17 tvíliða- og tvenndarleikur
Lilja Berglind Harðardóttir, U17 tvíliðaleikur
Gabríel Ingi Helgason, U17 einliða- og tvíliðaleikur
Orri Einarsson, U17-U19B einliðaleikur
Steinþór Emil Svavarsson, U19 tvíliðaleikur
Til hamingju með frábæran árangur kæru BH-ingar.
Fyrir áhugasama má finna nánari úrslit á tournamentsoftware.com.
Þórhallur Einisson tók fullt af skemmtilegum og flottum myndum af keppendum sem finna má hér á Facebook. Einnig albúm með myndum af BH-ingum hér á BH síðunni.
Íslandsmót unglinga 2020 átti fyrst að fara fram í mars en var frestað fram á haust vegna samkomubanns. Mjög strangar sóttvarnarreglur giltu á mótinu sem var spilað án áhorfenda. Allir fæddir 2004 og eldri þurftu að vera með grímum og takmarkaður fjöldi þjálfara mátti fylgjast með en ekki fara inná vellina og veita ráðleggingar í hléum eins og venjulega. Þá voru afmörkuð svæði fyrir hvert félag og góður aðgangur að sprittbrúsum. Þrátt fyrir þessar skrýtnu aðstæður skemmtu krakkarnir sér vel og voru ánægð með að fá að keppa.
Það voru Badmintonsamband Íslands og Badmintondeild Aftureldingar sem héldu mótið í sameiningu. Framkvæmdin var til fyrirmyndar, vel staðið að öllum sóttvörnum og kynningu á þeim, bein útsending á Youtube allan tímann og mikið birt af góðum myndum af keppendum á Facebook. Sendum við þeim bestu þakkir fyrir.
Commenti