top of page
Search

Góð skráning á sumarnámskeið

Updated: Jul 12, 2022

Badmintonfélag Hafnarfjarðar býður upp á badminton- og borðtennisnámskeið í sumar fyrir krakka á aldrinum 6-16 ára. Hentar fyrir allt frá byrjendum til keppniskrakka í badminton og byrjendur í borðtennis. Skipt verður í hópa eftir aldri og getu og því ættu allir að fá að njóta sín. Námskeiðin fara fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Mjög góð skráning er á námskeiðin í sumar og foreldrar því hvattir til að skrá börn sín fyrr en síðar til að ná örugglega plássi.


Í boði eru fimm viku löng námskeið þar sem þátttakendur mæta í 3-7 klst á dag. Allir fá ávexti í stuttu hléi fyrir og eftir hádegi og léttan hádegismat ef um heilsdags námskeið er að ræða. Það þarf því enginn að koma með nesti. Á föstudögum er grillveisla í hádeginu sem öllum þátttakendum er boðið í. Boðið er uppá fría gæslu frá 8:30-9:00 og 16:00-16:30.


Námskeiðin eru bæði fyrir þau sem vilja kynnast íþróttagreinum BH og þau sem eru þegar að æfa og vilja bæta sig. Hægt er að skrá sig á eins mörg námskeið og hverjum og einum hentar. Þátttakendur þurfa að mæta í íþróttafötum og gjarnan í innanhússkóm (þau sem eiga ekki innanhús skó ættu að vera á tánum til að renna ekki). Einnig mikilvægt að vera klædd eftir veðri því farið verður út í stuttar ferðir á hverjum degi. Hægt er að fá lánaða spaða og kúlur á staðnum.


Yfirþjálfarar eru Una Hrund Örvar og Sólrún Anna Ingvarsdóttir, badmintonþjálfarar. Einnig munu Anna Lilja Sigurðardóttir, íþróttafræðingur, og badmintonleikmennirnir og þjálfararnir Gabríel Ingi Helgason og Jón Sverrir Árnason kenna á námskeiðunum. Þá munu ungmenni sem æfa hjá félaginu á aldrinum 15-18 ára starfa við námskeiðin.


Skráning er hafin og fer fram í Sportabler.


Námskeið í boði



Eftirfarandi námskeið eru í boði:


Vika 1 – 13.-16.júní Badminton 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.9-12 Badminton 11-16 ára vanir keppniskrakkar kl.13-16 Borðtennis 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.13-16 Badminton og borðtennis kl.9-16 með léttum hádegisverði


Vika 2 – 4.júlí-8.júlí Badminton 11-16 ára vanir keppniskrakkar kl.9-12 Badminton 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.13-16 Borðtennis 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.9-12 Badminton og borðtennis kl.9-16 með léttum hádegisverði


Vika 3 - 11.júlí-15.júlí Badminton 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.9-12 Badminton 11-16 ára vanir keppniskrakkar kl.13-16 Borðtennis 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.13-16 Badminton og borðtennis kl.9-16 með léttum hádegisverði


Vika 4 – 8.ágúst-12.ágúst Badminton 11-16 ára vanir keppniskrakkar kl.9-12 Badminton 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.13-16 Borðtennis 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.9-12 Badminton og borðtennis kl.9-16 með léttum hádegisverði


Vika 5 – 15.ágúst-19.ágúst Badminton 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.9-12 Badminton 11-16 ára vanir keppniskrakkar kl.13-16 Borðtennis 6-13 ára byrjendur og styttra komnir kl.13-16 Badminton og borðtennis kl.9-16 með léttum hádegisverði


Verð


Hálfur dagur 6.000 kr vikan ef keypt er ein vika 1.200 kr afsláttur (20%) af seinni viku ef keyptar eru tvær vikur eða tvö börn skráð 1.800 kr afsláttur (30%) af þriðju og fjórðu viku ef barn/börn er skráð í þrjár vikur eða fleiri


Heill dagur 12.000 kr vikan ef keypt er ein vika 2.400 kr afsláttur (20%) af seinni viku ef keyptar eru tvær vikur eða tvö börn skráð 3.600 kr afsláttur (30%) af þriðju og fjórðu viku ef barn/börn er skráð í þrjár vikur eða fleiri


Innifalið eru ávextir í hléi, grillveisla síðasta daginn og léttur hádegisverður (samlokur, súpa, grjóngrautur o.þ.h.) aðra daga fyrir þau sem eru skráð allan daginn.


Nánari upplýsingar um námskeiðin eru veittar í gegnum netfangið bhbadminton@hotmail.com og í síma 8686361 (Anna Lilja).



bottom of page