top of page
Search

Frábær árangur á Íslandsmóti unglinga - Hrafnhildur og Stefán þreföld

Stórglæsilegt Íslandsmót unglinga 2024 fór fram í TBR húsunum helgina 5.-7.apríl. Frábær þátttaka var í mótinu hjá iðkendum BH, 46 skráðir keppendur sem stóðu sig vel. Árangur í verðlaunum talið hefur aldrei verið betri hjá BH, 14 Íslandsmeistaratitlar og 11 silfurverðlaun komu með heim í Hafnarfjörðinn. Þá náðu tveir BH-ingar þeim einstaka árangri að sigra þrefalt í sínum flokkum en það voru þau Stefán Logi Friðriksson og Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir.


Eftirfarandi BH-ingar unnu Íslandsmeistaratitil á mótinu:


  • Lilja Guðrún Kristjánsdóttir, 1.sæti í einliða og tvíliðaleik í U11A

  • Silja Rós Sigurðardóttir, 1.sæti í tvíliðaleik í U11A

  • Kári Bjarni Kristjánsson, 1.sæti í tvíliðaleik í U11A

  • Erik Valur Kjartansson, 1.sæti í einliðaleik í U13A og tvíliðaleik í U15A

  • Aron Snær Kjartansson, 1.sæti í einliðaleik í U13B

  • Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir, 1.sæti í einliða, tvíliða og tvenndarleik í U17A

  • Stefán Logi Friðriksson, 1.sæti í einliða, tvíliða og tvenndarleik í U17A

  • Katla Sól Arnarsdóttir, 1.sæti í tvíliðaleik í U17A


Eftirfarandi BH-ingar unnu silfurverðlaun á mótinu:


  • Lilja Guðrún Kristjánsdóttir, 2.sæti í tvenndarleik í U11A

  • Silja Rós Sigurðardóttir, 2.sæti í einliðaleik í U11A

  • Kári Bjarni Kristjánsson, 2.sæti í tvenndarleik í U11A

  • Birnir Hólm Bjarnason, 2.sæti í tvíliðaleik í U13

  • Hilmar Karl Kristjánsson, 2.sæti í tvíliðaleik í U13

  • Erik Valur Kjartansson, 2.sæti í tvenndarleik í U13

  • Daniel Schuldeis, 2.sæti í einliðaleik í U13B

  • Lena Rut Gígja, 2.sæti í tvíliðaleik í U17 og tvenndarleik í U19

  • Halla Stella Sveinbjörnsdóttir, 2.sæti í tvíliðaleik í U17

  • Jón Víðir Heiðarsson, 2.sæti í tvenndarleik í U19


Hamingjuóskir með árangurinn krakkar.


Í fyrsta sinn var boðið uppá skemmtimót fyrir iðkendur sem spila í U11B flokknum sem heppnaðist mjög vel. Allir þátttakendur spiluðu amk 3 leiki í getuskiptum riðlum bæði í einliða- og tvíliðaleik og fengu verðlaunapening og brúsa í mótslok.


Skipulag, umgjörð og framkvæmd mótsins var til fyrirmyndar hjá BSÍ og TBR. Dómarar á öllum undanúrslita og úrslitaleikjum og öll dagskrá á áætlun. Þökkum kærlega fyrir það.


Hér á Facebooksíðu BH má finna myndir af BH-ingum á mótinu en einng má finna fullt af skemmtilegum myndum frá keppni helgarinnar á Facebook síðu TBR.

Öll úrslit má finna hér á tournamentsoftware.com.





bottom of page