top of page
Search

Fjölmennt á Meistaramóti BH og RSL í Strandgötu um helgina

Updated: Nov 18, 2022

Helgina 18.-20.nóvember fer Meistaramót BH og RSL fram í Íþróttahúsinu við Strandgötu. Mótið er hluti af mótaröð Badmintonsambands Íslands og mun flest af besta badmintonfólki landsins taka þátt, samtals 108 keppendur sem er nýtt þátttökumet og 19% fleiri en í fyrra.


Vegna mótsins falla allar æfingar niður á föstudag og sunnudag. Hvetjum iðkendur til að koma og horfa á, það er mjög góð æfing. Einnig er hægt að bjóða sig fram að starfa sem teljarar á mótinu og/eða vinna í veitingasölu í fjáröflunarskini (sjá nánar neðar í þessari frétt).


Dagskrá


Gróf dagskrá mótsins er eftirfarandi:


Föstudagur 18.nóvember

kl. 16:00-22:00 - Keppt í einliðaleik


Laugardagur 19.nóvember

kl.10:00-13:00 - Keppt í einliðaleik

kl.13:00-19:00 - Keppt í tvíliðaleik


Sunnudagur 20.nóvember

kl.10:00-13:00 - Keppt í tvíliðaleik kl.13:00-18:00 - Keppt í tvenndarleik


Niðurröðun má finna hér á tournamentsoftware.com. Tímasetningar einstakra leikja koma inn þriðjudagskvöldið 15.nóvember. Athugið að allar tímasetingar eru birtar með fyrirvara. Ekki er ólíklegt að tímaáætlun raskist ef mikið verður um langa leiki og einnig gætu leikir byrjað fyrr ef mótið gengur hraðar fyrir sig. Biðjum keppendur að vera mætta í hús 30 mín fyrir áætlaðan leiktíma.


Teljarar


Iðkendur BH í U13 og eldri flokkum sem þekkja vel reglurnar og hafa keppt býðst að starfa sem teljarar á mótinu. Fimm vaktir eru í boði og fá teljarar einn bíómiða fyrir hverja vakt ásamt samloku og drykk. Áhugasamir geta skráð sig með því að senda póst á bh@bhbadminton.is. Athugið að það hafa stundum færri komist að en vilja í teljarastörfin og því hvetjum við þá sem vilja telja til að hafa samband sem fyrst.


Eftirfarandi teljaravaktir eru í boði: 1. Föstudag kl. 15:45-21:45

2. Laugardag kl. 8:45-14:00

3. Laugardag kl. 13:30-18:45

4. Sunnudag kl. 9:45-13:45

5. Sunnudag kl. 13:30-17:30


Veitingasala


Fjáröflunarnefnd BH stendur fyrir veitingasölu á mótinu. Hagnaður af sölunni skiptist niður á þau sem taka þátt annað hvort með því að selja eða útvega fríar eða ódýrar vörur til sölu. BH-ingar sem vilja safna í sinn badmintonsjóð (mótsgjöld, keppnisferðir o.þ.h.) geta séð nánari upplýsingar í Sportablerspjalli Fjáröflunarhópsins. Þau sem ekki þegar eru komin í Fjáröflunarhópinn geta sent skilaboð á Önnu Lilju í Sportabler eða í tölvupósti á bh@bhbadminton.is.


Bein útsending


Boðið verður uppá beina útsendingu frá öllum völlum á mótinu á Youtube rás Badmintonfélags Hafnarfjarðar. Einnig verða lifandi úrslit á livepoints.net.



bottom of page