top of page
Search

BH-ingar sigursælir á Meistaramóti Íslands

  • annaliljasig
  • Apr 28
  • 2 min read

Updated: May 5

Meistaramót Íslands í badminton fór fram í TBR húsunum 24.-26.apríl. Stór og glæsilegur hópur BH-inga tók þátt í mótinu, 43 leikmenn. Annað árið í röð var Badmintonfélag Hafnarfjarðar sigursælasta félag mótsins með 10 Íslandsmeistaratitla og 11 silfurverðlaun.


Gerda Voitechovskaja varð Íslandsmeistari í einliðaleik kvenna í úrvalsdeild þriðja árið í röð sem er stórglæsilegur árangur hjá þessari frábæru íþróttakonu. Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir var hársbreidd frá því að komast í úrslitaleikinn í úrvalsdeild en hún tapaði í hörkuspennandi þriggja lotu leik í undanúrslitunum. Tveir aðrir BH-ingar urðu Íslandsmeistarar í einliðaleik á mótinu. Helgi Valur Pálsson í 2. deild karla og Baldur Hrafn Gunnarsson í 1. deild karla. Í einliðaleik karla í úrvalsdeild var Róbert Ingi Huldarsson í 2.sæti og einnig voru silfurverðlaunahafar í einliðaleik Daníel Ísak Steinarsson í 1. deild karla og Angela Líf Kuforiji í 2. deild kvenna.


Í tvíliðaleik unnu BH-ingar fimm titla á mótinu. Bræðurnir Hákon Kemp og Lúðvík Kemp urðu Íslandsmeistarar í tvíliðaleik karla í 2. deild og Erla Rós Heiðarsdóttir og Katrín Stefánsdóttir í tvíliðaleik kvenna í 2. deild. Lena Rut Gígja varð Íslandsmeistari í tvíliðaleik kvenna í 1. deild en hún lék með Emmu Katrínu frá Tindastól. Silfurverðlaun í tvíliðaleik fengu þeir Þorleifur Fúsi Guðmundsson og Birkir Darri Nökkvason í 2. deild karla og Rúnar Gauti Kristjánsson og Daníel Ísak Steinarsson í 1. deild karla.


Daníel Ísak Steinarsson og Katla Sól Arnarsdóttir urðu Íslandsmeistarar í tvenndarleik í 1. deild. Silfurverðlaunahafarnir í 1. deild komu einnig frá BH en það voru þau Stefán Logi Friðriksson og Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir. Þá unnu þau Erik Valur Kjartansson og Elín Ósk Traustadóttir til silfurverðlauna í tvenndarleik í 2. deild.


Nánari úrslit mótsins má finna hér á tournamentsoftware.com, myndir af verðlaunahöfum BH hér og fleiri myndir frá mótinu á Facebook síðu TBR.


Þökkum BSÍ og TBR fyrir glæsilega framkvæmd og umgjörð mótsins. Einnig þökkum við þeim BH-ingum sem lögðu hönd á plóg í framkvæmdinni fyrir sitt mikilvæga framlag. Róbert Ingi sá um beina útsendingu á Youtube, Sólveig Ósk dæmdi eins og herforingi alla dagana og unglingarnir okkar sem eru í landsliðshópum BSÍ voru öflug í línuvörslu á úrslitaleikjunum.



Gerda Voitechovskaja varð Íslandsmeistari í einliðaleik kvenna í úrvalsdeild þriðja árið í röð á Meistaramóti Íslands í badminton 2025.

 
 
 

Comments


RioTinto_2017_Red_CMYK.jpg
lottó.jpg
rsl.JPG
Íþróttasamband Íslands
hfj.png
íbh.jpg
bottom of page