top of page
Search

Aðalfundur BH 2021

Aðalfundur Badmintonfélags Hafnarfjarðar verður haldinn fimmtudaginn 8.apríl kl.20:00 í Álfafelli, sal á annari hæð Íþróttahússins við Strandgötu.


Dagskrá aðalfundar er samkvæmt lögum félagsins eftirfarandi:

  1. Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar.

  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.

  3. Skýrsla stjórnar um starfsemi ársins.

  4. Lesnir og skýrðir endurskoðaðir reikningar.

  5. Lagabreytingar.

  6. Aðrar tillögur.

  7. Ákveðin árgjöld.

  8. Lögð fram starfs- og fjárhagsáætlun næsta starfsárs.

  9. Kosinn formaður.

  10. Kosnir aðrir stjórnarmenn.

  11. Kosnir tveir skoðunarmenn.

  12. Önnur mál.

Félagsmenn eru hvattir til að mæta. Þau sem óska eftir að taka þátt í fundinum í gegnum vef þurfa að senda póst á bhbadminton@hotmail.com og fá þá sent rafrænt boð.



Comments


bottom of page