top of page
Search

Skráningu að ljúka í Reykjavíkurmeistaramót barna og unglinga

Updated: Sep 13, 2022

Fyrsta unglingamót vetrarins, Reykjavíkurmótmeistaramót barna og unglinga, fer fram í TBR húsunum við Gnoðarvog 17.-18.september. Það er ekki skipt upp í A og B getustig á þessu móti og því mælum við ekki með því fyrir þau sem lítið sem ekki hafa keppt áður. Það koma B mót í október sem henta betur fyrir styttra komna. Allar nánari upplýsingar um Reykjavíkurmótið og mót almennt má finna hér fyrir neðan.


Reykjavíkurmeistaramót barna og unglinga - 17.-18.september


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog


Flokkar: U11-U19A - Aðeins keppt í A getustigi og hentar því ekki fyrir þau sem lítið eða ekkert hafa keppt áður og þau sem ekki treysta sér í að mæta mjög sterkum andstæðingum. Það koma B mót í október sem gott er að stefna á.


Keppnisfyrirkomulag: Mótið hefst kl.10 á laugardag. Undanúrslit og úrslit á sunnudag. Keppt verður í riðlum í einliðaleik en hreinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik.


Mótsgjöld: 2.200 kr fyrir einliðaleik og 1.900 kr fyrir tvíliða- og tvenndarleik (mótsgjöld skal leggja inná reikning BH þegar niðurröðun í mótið er tilbúin - skráðir fá póst til að láta vita um það)


Skráningu lýkur: Þriðjudaginn 13.september kl.13:00.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði.



Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá (athugið að mótaskrá fyrir tímabilið 2022-2023 er enn í vinnslu en verður vonandi staðfest á næstu dögum).


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og styttra komna, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2022-2023 U9 - fædd 2014 og síðar U11 - fædd 2012 og 2013 U13 - fædd 2010 og 2011 U15 - fædd 2008 og 2009 U17 - fædd 2006 og 2007 U19 - fædd 2004 og 2005



Kommentare


bottom of page