top of page
Search

Skráning hafin í næstu mót

Updated: Oct 7, 2022

Framundan eru þrjú mót sem við hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér: Haustmót trimmara, Unglingamót KR og Meistaramót ÍA.


Hvetjum einnig iðkendur sem hafa áhuga á keppni til að kíkja á mótaskrá Badmintonsambandsins hér á badminton.is og setja mót sem þau stefna á í dagatalið hjá sér. Skráningu lýkur yfirleitt viku fyrir mót en upplýsingar um nákvæman tíma koma á vefinn okkar badmintonfelag.is um leið og upplýsingar berast.


Hér fyrir neðan má sjá upplýsingar um næstu mót sem hægt er að skrá sig á og neðst eru almennar upplýsingar um badmintonmót.


SET-mótið - Unglingamót KR 15.-16.október 2022


Staðsetning: KR heimilið við Frostaskjól


Flokkar: U9-U17B - Hentar vel fyrir byrjendur og styttra komna. Þau sem hafa unnið til verðlauna á A mótum mega ekki taka þátt í B flokkum.


Keppnisfyrirkomulag: Keppt í einliðaleik í riðlum. Í U9 og U11 er ekki kynjaskipting og spilað með plastboltum. Í U13, U15 og U17 er skipt eftir kynjum og spilað með fjaðraboltum.


Mótsgjöld: 1.500 kr sem greiðist við skráningu í Sportabler.


Skráningu lýkur: Sunnudaginn 9.október


Skráning: Fer fram í Sportabler eða með því að senda póst á bh@bhbadminton.is



Haustmót trimmara - 16.október 2022


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog


Flokkar: Trimmflokkur - Badmintontrimmarar eru 18 ára og eldri leikmenn, sem ekki eru í úrvals- eða 1.deild og aldrei hafa verið skráðir í úrvalsdeild/meistaraflokk.


Keppnisfyrirkomulag: Keppt í tvíliðaleik. Leikmenn eru dregnir saman í hverri umferð. Leiknar verða a.m.k. 5 umferðir.


Mótsgjöld: 3.000 kr á mann.


Skráning: Skráning á staðnum - Keppni hefst kl.11:00



Meistaramót ÍA - 22.-23.október 2022


Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu


Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.


Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í öllum greinum (réttur til að breyta keppnisfyrirkomulagi

í samræmi við skráningu er áskilinn). Áætlað er að keppni í tvíliða- og tvenndarleik fari fram annan daginn og keppni í einliðaleik hinn daginn. Þegar skráning hefur borist verður nánari dagskrá gefin út.


Mótsgjöld: 3.500 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik (mótsgjöld skal leggja inná reikning BH: 0545-26-5010, kt. 501001-3090)


Skráningu lýkur: Fimmtudaginn 13.október


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði.


Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og styttra komna, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2022-2023 U9 - fædd 2014 og síðar U11 - fædd 2012 og 2013 U13 - fædd 2010 og 2011 U15 - fædd 2008 og 2009 U17 - fædd 2006 og 2007 U19 - fædd 2004 og 2005



Comments


bottom of page