top of page
Search

Næstu mót

Updated: Mar 8

Skráning er hafin í næstu tvö mót á mótaskrá Badmintonsambands Íslands. Hvetjum keppnisglaða BH-inga til að skrá sig. Upplýsingar um mótin má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót.


Landsbankamót ÍA - 9.-10.mars 2024


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog - ATH ekki á Akranesi vegna framkvæmda í íþróttahúsinu


Flokkar: U11-U195 A og B - Hentar fyrir bæði byrjendur og lengra komna en athugið að allir þátttakendur þurfa að þekkja reglurnar og geta verið teljarar hjá öðrum. Þau sem hafa unnið til verðlauna á A mótum mega ekki taka þátt í B. 


Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður til úrslita í einliða-, tvíliða- og tvenndarleik í öllum flokkum. Keppnisfyrirkomulag ræðst af skráningu en allir fá amk tvo leiki í einliðaleik. Skipt verður upp í A og B getustig í einliðaleik. Allir fá þátttökuverðlaun í U11 flokknum.


Keppni hefst klukkan 17:30 á föstudag 8.mars og er gert við ráð fyrir því að U15 spili þá. U11-U13 spilar á laugardegi og úrslit í U15 verða líklegast eftir hádegi á laugardeginum 9.mars.


Mótsgjöld: 2.500 kr fyrir einliðaleik og 2.000 kr á mann í hverja grein fyrir tvíliða- og tvenndarleik í U13 og U15.  1.500 kr fyrir einliðaleik og 1.000 kr á mann í hverja grein fyrir tvíliða- og tvenndarleik í U11. Mótsgjaldið þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Skráning: Fer fram á þessu eyðublaði og lýkur fimmtudaginn 29.febrúar.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


Reykjavíkurmót fullorðinna - 16. og 17.mars 2024


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog


Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.


Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í einliðaleik þar sem 2 fara uppúr riðli. Útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik. Keppni hefst kl.10 á laugardeginum og leikið fram í undanúrslit í öllum greinum. Sunnudagur - undanúrslit hefjast kl.10 og úrslit kl.13:30.


Mótsgjöld: 4.000 kr í einliðaleik og 3.000 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik. Vinsamlega leggið inn mótsgjöld eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur mánudaginn 11.mars. Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða við skráningu í Sportabler eða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og styttra komna, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2023-2024 U9 - fædd 2015 og síðar U11 - fædd 2014 og 2013 U13 - fædd 2012 og 2011 U15 - fædd 2010 og 2009 U17 - fædd 2008 og 2007 U19 - fædd 2006 og 2005



Comments


bottom of page