top of page
Search

Mót framundan

Updated: Feb 26, 2021

Hér fyrir neðan má finna upplýsingar um næstu mót sem BH-ingar geta skráð sig með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com. Hvetjum keppnisglaða til að taka þátt.


Unglingameistaramót Þórs - 6.mars

Staðsetning: Þorlákshöfn

Flokkar: U9-U19 B - Aðeins fyrir þau sem ekki hafa unnið til verðlauna á opnum mótum. Hentar mjög vel fyrir þau sem lítið hafa keppt. Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í riðlum í U9-U11 þar sem spiluð er ein lota upp í 30. Allir keppendur í þessum flokkum fá þátttökuverðlaun. Aðeins verður keppt í einliðaleik í U9-U11. Í U13 - U19 verður keppt í einliða- og tvíliðaleik, keppnisfyrirkomulag fer eftir þátttöku og áskilur

mótstjórn sér rétt til að sameina flokka ef þátttaka er lítil í einstaka flokkum. Mótsgjöld: 1500 kr fyrir einliðaleik og 1200 kr á mann fyrir tvíliðaleik. Skráningu lýkur: Þriðjudaginn 2.mars


Óskarsmót KR - 5.-7.mars Staðsetning: KR heimilið við Frostaskjól Flokkar: Meistara, A og B flokkar fullorðinna. Aðeins fyrir vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Keppnisfyrirkomulag: Hreinn útsláttur í öllum greinum, aukaflokkur fyrir þau sem tapa fyrsta leik í einliðaleik í A og B flokkum. Mótsgjöld: 2.500 kr á mann í hverja grein Skráningu lýkur: Laugardaginn 27.febrúar

Landsbankamót ÍA - 13.-14.mars Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi Flokkar: U11-U19 - Keppt í A og B getustigi í einliðaleik í U13-U19 og því hentar mótið fyrir bæði byrjendur og lengra komna í þessum flokkum.

Keppnisfyrirkomulag: Keppt verður í öllum greinum í U13-U19 en aðeins í einliðaleik í U11. Í einliðaleik U13-U19 verða A og B flokkar, B fyrir þau sem ekki hafa unnið til verðlauna á opnum mótum. Í U11 verður keppt í riðlum og sigurvegari hvers riðils kemst upp og keppir

til verðlauna. Allir fá þátttökuverðlaun í U11. Keppni hefst kl.9 báða dagana, U11 spilar á laugardag. Mótsgjöld: 2.000 kr fyrir einliðaleik í U13-U19, 1.500 kr fyrir U11 og 1.800 kr á mann í tvíliða- og tvenndarleik. Skráningu lýkur: Föstudaginn 5.mars

Almennt um badmintonmót

Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.

BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.

Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.

Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.

Flokkaskiptingar barna og unglinga frá veturinn 2020-2021 U9 - fædd 2012 og síðar U11 - fædd 2010 og 2011 U13 - fædd 2008 og 2009 U15 - fædd 2007 og 2006 U17 - fædd 2005 og 2004 U19 - fædd 2003 og 2002



Comments


bottom of page