top of page
Search

Mót í október

Þrjú mót eru á dagskránni í október.

TBR opið - 6.-7.október

Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog Flokkar: M.fl., A.fl. og B.fl. fullorðinna - aðeins fyrir vana Keppnisfyrirkomulag: Útsláttur í einliða en riðlar í tvíliða- og tvenndar. Mótsgjöld: 3500 kr fyrir einliðal. og 3.000 kr. pr. mann fyrir tvíliða og tvenndar. Skráningu lýkur: Mánudaginn 1.október kl.22 Keppni hefst klukkan 10:00 báða dagana.

Setmót KR - 13.-14.október

Staðsetning: KR heimilið í Frostaskjóli Flokkar: M.fl., A.fl. og B.fl. fullorðinna - aðeins fyrir vana Keppnisfyrirkomulag: Útsláttur í öllum greinum nema aukaflokkur í einliðaleik í A og B flokkunum. Mótsgjöld: 3000 kr fyrir einliða og 2500 kr fyrir tvíliða og tvenndarleik Skráningu lýkur: Sunnudaginn 7.október kl.20 Tvíliða- og tvenndarleikur verður spilaður á laugardag og einliðaleikurinn á sunnudag.

Vetrarmót unglinga - 27.-28.október

Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog Flokkar: U13-U19 - keppt verður í bæði A og B getustigi í einliðaleik og því geta bæði byrjendur og lengra komnir geta tekið þátt Keppnisfyrirkomulag: Riðlar í einliðaleik - útsláttur í tvíliða og tvenndar Mótsgjöld: 1800 kr fyrir einliðaleik og 1500 kr á mann í tvíliða og tvenndarleik Skráningu lýkur: Sunnudaginn 21.október Mótið hefst kl. 10.00 báða dagana. Dagskrá verður ákveðin eftir að skráningu lýkur, en þó er ákveðið að keppni í B-flokki verði einungis á laugardeginum.

BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp.

Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.

B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti. Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.

Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.

Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.

Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2018-2019

U9 - fædd 2010 og síðar U11 - fædd 2008 og 2009 U13 - fædd 2007 og 2006 U15 - fædd 2005 og 2004 U17 - fædd 2003 og 2002 U19 - fædd 2001 og 2000

Comentarios


bottom of page