Mánudaginn 2. september fer vetrarstarfið hjá okkur í Badmintonfélagi Hafnarfjarðar af stað af fullum krafti bæði í badminton- og borðtennisdeild. Hlökkum til að fá bæði gamla og nýja iðkendur í hús aftur eftir gott sumarfrí.
Skráning í hópa fer fram hér í Sportabler. Í suma hópa í badminton er kominn biðlisti sem áhugasöm eru hvött til að skrá sig á og við höfum samband ef pláss losna. Allar upplýsingar um æfingatíma og æfingagjöld má finna hér á vefnum eða með því að smella á slóðirnar hér fyrir neðan.
Badminton
Eigum lausa badmintonvelli í hádeginu á föstudögum kl.11:50-12:50, þriðjudögum kl.22:00-23:00 og miðvikudögum kl.21:40-22:40 fyrir þau sem vilja koma og spila badminton 2-4 saman. Stakur tími kostar 5.000 kr/völlurinn en fastur tími frá september til maí 89.500 kr/völlurinn. Bókanlegt í gegnum bh@bhbadminton.is.
Borðtennis
Hægt er að leigja staka tíma í borðtennis á mánudögum kl.19:30-20:30, þriðjudögum kl.20-21 og föstudögum kl.17-19. Stakur tími kostar 3.000 kr/klst fyrir hvert borð. Best að hringja á undan í íþróttahúsið og athuga hvort það sé ekki örugglega laust í síma 5551711.
Aðstoð við skráningu og nánari upplýsingar um starfið veitir Anna Lilja framkvæmdastjóri BH í gegnum netfangið bh@bhbadminton.is og í síma 8686361.
Sjáumst í Strandgötu!
Comments