Helgina 14.-15.september fór Reykjavíkurmót unglinga fram í TBR húsunum. Keppt var í 18 riðlum í tvíliða- og tvenndarleik í U13-U19 flokkunum. Riðlarnir voru getuskiptir og því mikið um jafna og skemmtilega leiki. Þetta var fyrsta mótið sem spilað er með nýju keppnisfyrirkomulagi í anda Bikarmóts BH og var mikil ánægja með hvernig til tókst.
Keppendur frá BH voru rúmlega 30 talsins og stóðu sig vel. Okkar fólk komst á verðlaunapall í 13 riðlum og var til fyrirmyndar innan vallar sem utan. Lúðvík Kemp náði þeim frábæra árangri að sigra í bæði tvíliða- og tvenndarleik. Verðlaunahafar BH voru eftirfarandi:
Lilja Guðrún Kristjánsdóttir, 2.sæti í tvenndarleik U13B
Ágúst Malek Hasan, 2.sæti í tvenndarleik U13B
Kári Bjarni Kristjánsson, 1.sæti í tvenndarleik í U13C
Sigurður Bill Arnarsson, 2.sæti í tvíliðaleik í U13A
Laufey Lára Haraldsdóttir, 1.sæti í tvíliðaleik og 2.sæti í tvenndarleik í U15A
Lúðvík Kemp, 1.sæti í tvíliðaleik í U15A og tvenndarleik í U17-19B
Hákon Kemp, 1.sæti í tvíliðaleik í U15A og 2.sæti í tvenndarleik í U15A
Aron Snær Kjartansson, 2.sæti í tvíliðaleik í U15B
Birnir Breki Kolbeinsson, 2.sæti í tvíliðaleik í U15B
Hilmar Karl Kristjánsson, 2.sæti í tvenndarleik í U15B
Hrafnhildur Edda Ingvarsdóttir, 2.sæti í tvíliða- og tvenndarleik í U17-19A
Stefán Logi Friðriksson, , 2.sæti í tvíliða- og tvenndarleik í U17-19A
Katla Sól Arnarsdóttir, 2.sæti í tvíliðaleik í U17-19A
Rúnar Gauti Kristjánsson, 2.sæti í tvíliðaleik í U17-19A
Snædís Sól Ingimundardóttir, 1.sæti í tvíliðaleik í U17-19B
Þórdís María Róbertsdóttir, 1.sæti í tvíliðaleik og 2.sæti í tvenndarleik í U17-19B
Angela Líf Kuforji, 1.sæti í tvenndarleik í U17-19B
Helgi Sigurgeirsson, 2.sæti í tvenndarleik í U17-19B
Nánari úrslit frá mótinu má finna hér á tournamentsoftware.com og myndir frá keppninni hér á Facebook.
Comments