Dagana 23. og 24.október er vetrarfrí í öllum skólum í Hafnarfirði. Badmintonfélag Hafnarfjarðar býður börnum, unglingum og foreldrum sem eru í bænum í vetrarfríinu að koma í badminton og borðtennis í íþróttahúsið við Strandgötu þessa daga.
Opnir tímar fyrir skráða iðkendur hjá BH og foreldra þeirra verða mánudaginn 23.október og þriðjudaginn 24.október kl.10:00-12:00. Einnig verða hefðbundnir æfingatímar samkvæmt æfingatöflu seinnipart dags þessa báða daga fyrir skráða iðkendur. Vinsamlega merkið við mætingu í Sportabler.
Opnir tímar fyrir börn og foreldra sem ekki eru skráð í félagið verða mánudaginn 23.október og þriðjudaginn 24.október kl.13:00-15:00. Mikilvægt er að skrá sig í þessa tíma þar sem pláss er takmarkað en aðgangur er ókeypis. Skráning fer fram hér.
Þjálfarar BH verða á staðnum báða dagana og taka vel á móti öllum. Spaðar og kúlur verða til láns fyrir þau sem þurfa.
Spaðakveðjur BH
Kommentare