Framundan eru nokkur opin mót sem við hvetjum keppnisglaða BH-inga til að kynna sér. Upplýsingar um mótin má finna hér fyrir neðan en neðst í fréttinni eru almennar upplýsingar um badmintonmót.
Óskarsmót KR - 25.-26.febrúar 2023
Staðsetning: KR heimilið í Frostaskjóli
Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.
Keppnisfyrirkomulag: Hreinn útsláttur í öllum flokkum og greinum nema aukaflokkur í einliðaleik í 1. og 2.deild.
Mótsgjöld: 3.000 kr á mann í hverja grein. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur laugardaginn 18.febrúar Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Landsbankamót ÍA - 11.-12.mars 2023
Staðsetning: Íþróttahúsið við Vesturgötu á Akranesi. ATHUGIÐ að íþróttahúsið við Vesturgötu er hnetu- og fiskfrítt svæði og eru harðfiskur, Collab og allar vörur sem innihalda hnetur bannaðar í húsinu. Vörur sem innihalda hnetur eru t.d Corny og flestar orkustangir, margar tegundir af kexi, Nutella, hnetusmjör og fleira.
Flokkar: U11-U17 A og B. Hentar fyrir bæði styttra og lengra komna.
Keppnisfyrirkomulag: Riðlar eða aukaflokkur í einliðaleik þannig að allir fá amk 2 leiki. Hreinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik. Leikið til úrslita í öllum flokkum. U11 fá þátttökuverðlaun.
Mótsgjöld: 2.000 kr í einliðaleik og 1.800 kr í tvíliðaleik í U13-U17. 1.500 kr í hverja grein í U11. Mótsgjaldið þarf að leggja inná reikning BH: 0545-26-5010 kt. 501001-3090. Best að gera það þegar mótskrá liggur fyrir og vitað í hversu mörgum greinum iðkandi keppir.
Skráning: Skráning fer fram á þessu eyðublaði og lýkur fimmtudaginn 2.mars.
Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Meistaramót Reykjavíkur - 25.-26.mars 2023
Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog
Flokkar: Úrvals, 1. og 2.deild fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Hægt að fá undanþágu frá aldri í sérstökum tilfellum.
Keppnisfyrirkomulag: Riðlakeppni í einliðaleik og tveir upp úr hverjum riðli. Útsláttarkeppni í tvíliða-og tvenndarleik. Keppni hefst kl.10 á laugardag. Áætlað að undanúrslit verði kl.10 á sunnudag og úrslit kl.13:30. Mótsstjórn áskilur sér rétt til breytinga á tímasetningum.
Mótsgjöld: 4.000 kr fyrir einliðaleik og 3.000 kr á mann fyrir tvíliða- og tvenndarleik. Vinsamlega leggið mótsgjöld inn eigi síðar en á mánudegi eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Skráning: Skráning BH-inga fer fram á þessu eyðublaði og lýkur sunnudaginn 19.mars Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.
Almennt um badmintonmót
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.
B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og styttra komna, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.
Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2022-2023 U9 - fædd 2014 og síðar U11 - fædd 2012 og 2013 U13 - fædd 2010 og 2011 U15 - fædd 2008 og 2009 U17 - fædd 2006 og 2007 U19 - fædd 2004 og 2005
Comments