top of page
Search

Skráning er hafin í fyrsta barna og unglingamót vetrarins

Fyrsta barna- og unglingamót vetrarins fer fram helgina 16.-17.september. Skráningarslóð og nánari upplýsingar má finna hér fyrir neðan. Almennar upplýsingar um badmintonmót eru neðst í fréttinni.


Reykjavíkurmeistaramót barna og unglinga - 16.-17.september 2023


Staðsetning: TBR húsin við Gnoðarvog


Flokkar: U11-U19 - Aðeins keppt í A getustigi og hentar því ekki fyrir byrjendur eða styttra komna. Þátttakendur þurfa að hafa keppt áður, kunna leikreglurnar og treysta sér til að vera teljarar í leikjum hjá öðrum keppendum til að taka þátt.


Keppnisfyrirkomulag: Spilað verður í riðlum í einliðaleik og fer sigurvegari hvers riðils áfram í útsláttarkeppni. Allir fá því a.m.k. tvo leiki í einliðaleik. Hreinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik og því einhverjir sem fá bara einn leik í þessum greinum.

Það ræðst af þáttöku keppenda hvort að mótið verði spilað á einum eða tveimur dögum. Það verður ljóst þegar mótaskrá verður útgefin.


Mótsgjöld: 2.200 kr fyrir einliðaleik og 1.900 kr fyrir tvíliða- og tvenndarleik.

Mótsgjöld þarf að leggja inn á reikning BH eigi síðar en mánudaginn eftir mót:

0545-26-5010, kt. 501001-3090


Skráning: Skráning fer fram á þessu eyðublaði og lýkur mánudaginn 11.september.


Athugið að með því að senda inn skráningu í mótið samþykkir keppandi og/eða hans aðstandandi að nafn hans og kennitala birtist á mótavef Badmintonsambandsins, tournamentsoftware.com.


Almennt um badmintonmót


Yfirlit yfir mót ársins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.


BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að skrá sig á þar til gerð eyðublöð eða með tölvupósti til bh@bhbadminton.is innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp. Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.


Allir sem skrá sig á mót þurfa að kunna reglurnar nokkuð vel og treysta sér til að vera teljarar á leikjum hjá öðrum keppendum. Á lang flestum barn og unglingamótum þurfa þátttakendur að setjast upp í dómarastól að sínum leik loknum og telja stig í næsta leik á eftir.


B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og styttra komna, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti.


Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 15 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í 2.deild fullorðinna.


Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.


Aldursflokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2023-2024 U9 - fædd 2015 og síðar U11 - fædd 2013 og 2014 U13 - fædd 2011 og 2012 U15 - fædd 2009 og 2010 U17 - fædd 2007 og 2008 U19 - fædd 2005 og 2006



Comments


bottom of page