Nú stendur mótatímabilið sem hæðst og eru eftirfarandi mót framundan sem BH-ingar geta skráð sig á með því að senda póst á bhbadminton@hotmail.com
Unglingameistaramót TBR - Reykjavíkurleikarnir - 2.-3.febrúar
Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog Flokkar: U13-U19 A mót - aðeins fyrir þau sem hafa keppt áður Keppnisfyrirkomulag: Þeir sem tapa fyrsta einliðaleik U-13 , U-15 og U-17 ára fara í aukaflokk. Í U-19 ára er keppt í riðlum í einliðaleik. Hreinn útsláttur í tvíliða- og tvenndarleik. Keppni hefst klukkan 9 báða dagana. Undanúrslit og úrslit verða spiluð á sunnudag. Sterkir færeyskir keppendur taka þátt í mótinu og þurfa allir að vera viðbúnir að mæta mjög sterkum andstæðingum. Mótsgjöld: Einliðaleikur kr. 2500 - Tvíliða- og tvenndarleikur kr.1800 Skráningu lýkur: Laugardaginn 26.janúar
Deildakeppni BSÍ - 15.-17.febrúar
Staðsetning: TBR húsið Flokkar: Meistara, A og B flokkur fullorðinna - aðeins fyrir vant keppnisfólk
Keppnisfyrirkomulag: Íslandsmót liða - reynum að koma öllu vönu keppnisfólki sem vill vera með í lið. Mótsgjöld: 5.000 krónur á mann
Skráningu lýkur: Sunnudaginn 27.janúar
Almennt um mót
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp.
Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti. Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2018-2019
U9 - fædd 2010 og síðar U11 - fædd 2008 og 2009 U13 - fædd 2007 og 2006 U15 - fædd 2005 og 2004 U17 - fædd 2003 og 2002 U19 - fædd 2001 og 2000

Comments