Næstu mót sem BH-ingar geta skráð sig á eru eftirfarandi:
Meistaramót BH - 16.-18.nóvember
Staðsetning: Strandgata
Flokkar: Meistara, A og B flokkur fullorðinna. Hentar aðeins fyrir vant keppnisfólk 15 ára og eldri.
Keppnisfyrirkomulag: Einliðaleikur í riðlum þar sem tveir komast uppúr riðlinum í útsláttarkeppni. Tvíliða- og tvenndarleikur með útslætti eða riðlum ef tími gefst til. Stefnt að því að hafa einliðaleiki á föstudag og laugardag en tvíliða og tvenndar á sunnudag.
Mótsgjöld: 3.000 krónur á mann í einliðaleik og 2.500 krónur á mann tvíliða- og tvenndarleik.
Skráningu lýkur: Sunnudaginn 11.nóvember
Unglingamót Aftureldingar - 24.-25.nóvember
Staðsetning: Íþróttamiðstöðin Varmá í Mosfellsbæ
Flokkar: U11-U19 A og B mót - hentar bæði fyrir byrjendur og lengra komna - B flokkur er fyrir þau sem ekki hafa unnið til verðlauna á opnum mótum
Keppnisfyrirkomulag: Einliðaleikur þar sem allir fá amk tvo leiki. Í U11 verða spilaðir eins margir leikir og mögulegt er, ekki leikið til úrslita.
Mótsgjöld: 1200 kr fyrir U11 og 1800 kr í öðrum flokkum
Skráningu lýkur: Sunnudaginn 18.nóvember
Dagskrá er eftirfarandi:
Laugardagur kl.10-12 - u11
Laugardagur kl.12:30-16 - U13
Sunnudagur kl.9:30-13 - U15
Sunnudagur kl.13-16 - U17-U19
Ljúflingamót TBR - 2.desember
Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog
Flokkar: U9-U11 einliðaleikur - hentar vel fyrir byrjendur
Keppnisfyrirkomulag: Upplýsingar væntanlegar
Mótsgjöld: Upplýsingar væntanlegar
Skráningu lýkur: Upplýsingar væntanlegar
Jólamót unglinga - 15.desember
Staðsetning: TBR húsið við Gnoðarvog
Flokkar: U13-U19 einliðaleikur
Mótsgjöld: Upplýsingar væntanlegar
Keppnisfyrirkomulag - Upplýsingar væntanlegar
Skráningu lýkur: Upplýsingar væntanlegar
Almennt um mót
BH-ingar sem vilja taka þátt í mótum þurfa að senda nafn, kennitölu og nöfn meðspilara ef við á til bhbadminton@hotmail.com innan skráningarfrestsins sem gefinn er upp.
Mótsgjöld þarf að greiða inná reikning BH eigi síðar en daginn eftir mót: 0545-26-5010, kt. 501001-3090.
B mót unglinga henta best fyrir krakka sem eru að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni, þau sem hafa unnið til verðlauna á opnum mótum mega ekki keppa þar. A mót unglinga eru erfið fyrir þau sem ekki hafa keppt áður og er ekki mælt með því að byrja á slíku móti. Fullorðinsmót henta aðeins fyrir mjög vant keppnisfólk 14 ára og eldri. Fullorðnir ættu að byrja á að prófa að keppa í svokölluðum trimmótum en gætu svo í kjölfarið keppt í B flokki fullorðinna.
Um að gera að leita ráða hjá þjálfurum við val á mótum.
Yfirlit yfir öll mót vetrarins má finna á badminton.is undir mótamál og mótaskrá.
Flokkaskiptingar barna og unglinga veturinn 2018-2019
U9 - fædd 2010 og síðar U11 - fædd 2008 og 2009 U13 - fædd 2007 og 2006 U15 - fædd 2005 og 2004 U17 - fædd 2003 og 2002 U19 - fædd 2001 og 2000
Comments